Skattar hækka en tekjur minnka//hlytur að vera röng stefna

Skattar hækka en tekjur minnka
Viðskipti | Morgunblaðið | 14.5.2010 | 5:30

Vörugjaldshækkun á bensíni skilaði ríkissjóði tekjuauka upp... Tekjur ríkisins drógust saman á fyrstu þremur mánuðum ársins 2010 miðað við sama tímabil síðasta árs. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu tæplega 111 milljörðum króna, sem er lækkun um ríflega 11 milljarða króna.

Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 10,3 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum um greiðsluafkomu ríkissjóðs, sem birtar voru á miðnætti í gær á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.

Í umfjöllun ráðuneytisins kemur fram að tekjuöflun ríkisins hafi verið heldur lakari en stefnt var að. Samkvæmt áætlun stjórnvalda áttu 115 milljarðar króna að skila sér í ríkiskassann á fyrsta fjórðungi ársins. Frávikið er því neikvætt um sem nemur 3,5% af áætlun.

Ýmsir skattar voru hækkaðir ríflega í upphafi þessa árs. Til að mynda var þrískipt þrepaskattkerfi tekið upp við heimtu á tekjuskatti einstaklinga. Tekjur ríkisins af tekjuskatti einstaklinga hækkuðu lítillega milli ára, eða um ríflega 3%. Skatttekjur frá fyrirtækjum og öðrum lögaðilum minnkuðu um fjórðung.//////ef Þetta er ekki röng stefna þá veit maður ekki hvað hún er!!!!þetta et al vitlaus lausn a´malum aukin atvinna meiri skattar e-n ekki öfugt,essi ríkisstjórn veit ekkert hvap hún er að gera,það má auðvitað hækka skatta á tekjuhá og það sem hafa vinnu en okkur hin sem rétt lifum af okkar tekjum hað getum við borgað,svo atvinnulausir hvað borga þeir/Halli gamli


mbl.is Skattar hækka en tekjur minnka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045651

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband