Hagnaður HS Orku 1,2 milljarðar//mætti nota það?????

Hagnaður HS Orku 1,2 milljarðar
Viðskipti | mbl.is | 17.5.2010 | 10:01

HS OrkaHagnaður HS Orku nam 1,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 802 milljónum króna. Segir í tilkynningu frá félaginu að aukinn hagnaður skýrist einkum af framvirkum samningngum.Segir í tilkynningu frá félaginu að betri afkoma stafi aðallega af hækkun á álafleiðum (framtíðarvirði álsölusamninga) en á móti komi umtalsverð lækkun gengishagnaðar, gjöld í stað tekna vegna hlutdeildarfélaga og hækkun skatta.

Samkvæmt árshlutareikningnum námu heildartekjur félagsins 1,81 milljarði króna samanborið við 1,55 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2009. Þessa tekjuaukningu má í meginatriðum rekja til hækkunar tekna af raforkusölu til stóriðju vegna mun hærra álverðs en á sama tímabili 2009, að því er segir í tilkynningu.

Haft er eftir Júlíusi Jónssyni, forstjóra HS Orku, að eiginfjárhlutfallið hafi hækkað úr 35,5% í ársbyrjun í 39,2% en það var 16,7% fyrir fimmtán mánuðum síðan.  En hlutafé félagsins var aukið um 2,5 milljarða króna á tímabilinu.//////Svo eigum við að selja þetta gullegg nei það gertur ekki verið að við séum svo vittaus er það????en þetta hlytur að varða skoðað í kjölinn/Halli gamli


mbl.is Hagnaður HS Orku 1,2 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband