Handtökuskipun alltof harkaleg !!!!!!!

Handtökuskipun alltof harkaleg
Innlent | mbl | 18.5.2010 | 14:56

Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson á aðalfundi Kaupþings Sigurður Einarsson hefur kært til Hæstaréttar úrskurð héraðsdóms um handtökuskipun á hendur sér. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. „Það þarf að vera einhver rík nauðsyn til þess, sem við teljum að hafi alls ekki verið," segir Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar.

Samkvæmt heimildum mbl.is þarf embætti hans að skila inn greinargerð til Hæstaréttar um það leyti sem þetta er ritað, klukkan þrjú í dag. Lögmaður Sigurðar, Gestur Jónsson, hefur þegar skilað sinni greinargerð til Hæstaréttar. Líklegt er talið að úrskurður Hæstaréttar muni liggja fyrir á morgun eða fimmtudag.

Handtökuskipunin frá sérstökum saksóknara var, sem kunnugt er, send til Alþjóðalögreglunnar Interpol, sem lýsti eftir Sigurði opinberlega þriðjudaginn 11. maí síðastliðinn.

Gestur segir í samtali við mbl.is að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um handtökuskipunina hafi verið kveðinn upp að Sigurði fjarstöddum og án vitneskju hans. Sigurður hafi fyrst heyrt af málinu í fjölmiðlum og ekki fengið endurrit af úrskurðinum fyrr en á fimmtudeginum 13. maí. Strax þá hafi úrskurðurinn verið kærður.

Sigurður hefur gefið það upp að hann sé heima hjá sér í Chelsea í London og sé ekki á flótta. Hann hefur boðist til að mæta í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara, fái hann tryggingu fyrir því að hann verði ekki handtekinn við komuna til landsins og að hann fái að snúa aftur til síns heima að yfirheyrslu lokinni.

Gestur vill ekki útlista forsendur kærunnar, en játar því að álykta megi út frá ofangreindu að Sigurður telji handtökuskipunina hafa verið óþarfa og miklu harkalegri viðbrögð en nauðsynlegt hafi verið miðað við aðstæður.

„Mönnum bregður auðvitað við það líka að kveðnir séu upp úrskurðir af þessu tagi án þess að þeir sjálfir hafi hugmynd um það, eða geti haft kost á því að gæta sinna hagsmuna," segir Gestur.

„Það eru heimildir til þess að slíkt sé gert. Auðvitað hefði héraðsdómur aldrei gert það án þess að til þess væri lagaheimild. Við teljum hins vegar að skilyrðin í lagaheimildinni séu ekki uppfyllt. Það þarf að vera einhver rík nauðsyn til þess, sem við teljum að hafi alls ekki verið," segir Gestur.///er marks að gæta i þessu öllu og ber að far að lögum er það ekki,þetta að kæra þetta til Æðstaréttar er í lagi en það verður eins og siðast ekki annað en staðfest??eða skoðast bara ,af hverju er ekki hægt að sinni að yfirheira Sigurð þarna úti bara og láta það nægja að sinni,skoða hvað kemur þar út,ef ekki er framsal er ekkert annað í stöðunni,lög skulu var lög/en ekki bara þegar þeim hentar/Halli gamli


mbl.is Handtökuskipun alltof harkaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045649

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband