Fasteignagjöld hæst á Selfossi !!!!!!

Fasteignagjöld hæst á Selfossi
Innlent | mbl.is | 20.5.2010 | 12:55

Miklu munar á fasteignagjöldum eftir því hvar á landinu fasteignin er. Fasteignagjöld eru hæst á Selfossi en lægst í Hólmavík samkvæmt nýlegri samantekt Fasteignaskrár Íslands fyrir Byggðastofnun. Selfyssingur í meðalstóru einbýli greiðir 258 þúsund krónur á ári í fasteignagjöld en Hólmvíkingur 122 þúsund fyrir samskonar eign.
Frá þessu greinir í Dagskránni, fréttablaði Suðurlands.

 

Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161 fermetri að grunnfleti á ríflega 800 fermetra lóð. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2009. Horft er til allra gjaldliða sem teljast til fasteignagjalda, þ.e. fasteignaskatts, lóðarleigu, fráveitugjalds,
vatnsgjalds og sorpgjalda.

Sorphirðugjöld hækkuðu víða í febrúar síðastliðnum en hækkunin var mest í sveitarfélaginu Árborg, sem Selfoss tilheyrir. Hækkun sorphirðugjalda skýrir hluta af háum fasteignagjöldum./////en það er alveg rétt að margt hefur hækkað við  þjónustu og annað, i þessu en fasteignir hafa lækkað mikið i verði allt að 40% svo þetta verður að leiðrétta gjöld af  fasteingini sjálfri ,þetta hlytur að bera að hafa i huga við þessa skoðun á málum þarna,þetta með að sveitafélög beri meiri tekjur af álagningu eins og lagt er á i dag ,það ber sveitafelgum að fá meira  en 13-14% af álögðum gjöldum sem ætti að vera ,endalaust er ekki hægt að hækka fasteignagjald/Halli gamli


mbl.is Fasteignagjöld hæst á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband