Leggur „öskuskatt“ á Breta/þetta mun sennilega fleiri þjóðir gera ????

Leggur „öskuskatt“ á Breta
Innlent | mbl.is | 22.5.2010 | 9:23

Frétt Daily Mail. Íslendingar geta ekki kvartað undan... Umfang efnahagstjónsins af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli er að taka á sig skýrari mynd. Nýjar upplýsingar frá Bretlandi sýna að ferðum um breskum lofthelgina fækkaði um 21,5% í apríl miðað við sama tíma í fyrra. Þessi röskun á flugi er án fordæmis. Nýr „öskuskattur“ hefur litið dagsins ljós.

Alls fóru 141.956 flugvélar í gegnum bresku lofthelgina í apríl samanborið við 180.166 í fyrra. 

Haft er eftir Ian Hall, yfirmanni bresku flugumferðarstjórnarinnar (NATS), að röskunin sem orðið hafi á flugi vegna gossins sé án nokkurs fordæmis.

Breska götublaðið Daily Mail fjallar um málið út frá sjónarhorni ferðalanga sem hafa lent í hremmingum eftir að ferðum var aflýst.

Segir í frétt blaðsins að tryggingarisinn Aviva hyggist leggja sérstakan „öskuskatt“ á ferðamenn í formi ferðatryggingar sem geti numið allt að 80 pundum, eða sem svarar 14.800 krónum, á hverja meðal fjölskyldu, nú þegar sumarfríin eru að skella á.

Fram kemur að 150.000 Bretar, hálf íslenska þjóðin, hafi orðið strandaglópar í apríl vegna aflýstra flugferða.

Eru önnur tryggingafélög sögð munu fylgja í kjölfar Aviva svo að ljóst er að öskuskatturinn verður all drjúgur þegar upp er staðið.///þetta er ein leiðin til að fyrirbyggja það tap sem af þessu hefur orðið,um það er ekki deilt,þetta muni ábyggilega aðrar þjóðir hugsa og ger jafnvel ,við gerum þetta og eigum að gera meira með að þvi aðs etja aukaskatt a´þa´sem far og skoða gosið þegar frá lýður!!! við þurfum hvort eð er að borga þarna bætur,en flugfélögin verða einnig að sjá um sig,þau eru i samkeppni/Halli gamli


mbl.is Leggur „öskuskatt“ á Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband