Rétt ákvörðun að draga úr veiðum 2007/samt umdeilt !!!!!!

Rétt ákvörðun að draga úr veiðum 2007
Innlent | mbl.is | 4.6.2010 | 14:20

Einar Kristinn Guðfinnsson.Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir jákvæðar fréttir vera í þeim tölum sem Hafrannsóknarstofnun kynnti í dag um stærð þorskstofnsins. Þetta sýni að rétt hafi verið að draga mjög úr veiðum árið 2007.Ég tel að þetta sé klárlega afleiðing af erfiðri ákvörðun sem ég tók á árinu 2007 þegar ákveðið var að skera niður þorskaflann mjög mikið. Þá var staðan sú að viðmiðunarstofninn og hrygningarstofninn voru miklu minni en núna og framundan frekari niðurskurður nema gripið yrði í taumana. Það er ljóst af þessum tölum sem við sjáum þarna að viðmiðunarstofninn í þorskinum, það er fjögurra ára fiskur og eldri, hefur stækkað um þriðjung miðað við það sem ætla má að hann verði á næsta ári. Hrygningarstofninn stækkar með sama hætti um 50%.  Þannig að það er ljóst mál að við erum að sjá verulegan árangur af erfiðum ákvörðunum síðustu árin," segir Einar.

Hann segir að í sögulegu samhengi verði að fara allt aftur til ársins 1989 til að sjá stofnstærð þorsk jafn stóra. Þá var tillaga Hafró um heildarkvóta upp á 300 þúsund tonn. 

„Hrygningarstofninn er nú kominn í þrjú hundruð þúsund tonn og fer stækkandi. Slíkar tölur höfum við einfaldlega ekki séð, nema með tveimur undantekningum, frá árinu 1970. Þannig að ég vil að öllu þessu samanlögðu segja að þetta eru jákvæð tíðindi," segir Einar.///////auðvitað,var þetta umdeilt mjög og kannski ekki svo auðvelt að hrekja það,en þetta er vonandi rétt skíring ,og þá mætti einmitt nú auka kvótan meira enn þessi 10 þús. tonn allt uppí 60 þús tonn eða meira það er sanngjarnt um þess tíma sem kreppan er að ganga yfir ,en vonandi að Ráherra gefi það út sem fyrst/það veiti ekki af og vel það


mbl.is Rétt ákvörðun að draga úr veiðum 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045779

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband