Endurfundir togarajaxla/gott framtak, afbragsmanna/hefði vilja vera þarna !!!!!

Endurfundir togarajaxla
Innlent | mbl.is | 3.7.2010 | 13:04

Ragnar Franzson og Jónas Þorsteinsson lögðu krans að...„Þetta er glæsilegt,“ sagði Sæmundur Pálsson, einn skipuleggjenda hátíðar gamalla togarajaxla sem haldin er á Akureyri í dag. Þar hitta sjómenn af síðutogurunum gamla félaga sem þeir hafa ekki séð suma hverja áratugum saman. Þáttakendur eru á þriðja hundrað, bæði togarajaxlar og makar þeirra.

 

Sæmundur sagði að stemmningin sé mjög góð í hópnum. Þarna hittist gamlir félagar og vinir og hafi um margt að spjalla og rifja upp eftir áratuga langan aðskilnað. Vináttubönd sem bundust í stórsjó og streði hafa ekki trosnað.

„Ég átti aldrei von á að þetta yrði svona glæsilegt,“ sagði Sæmundur. „Ég er nett sjokkeraður bara og jafnvel klökkur. Sjálfur er ég að hitta félaga sem ég var með á sjó sem unglingur og hef ekki hitt í áraraðir.

Stemmningin nú þegar fólk er að koma sér fyrir í matsalnum er alveg stórkostleg. Menn eru að spjalla og hlæja. Það er ótrúleg gleði í þessu. Þetta er sko gaman!"

Dagskrá hátíðar togarajaxlanna hófst klukkan 11.00 í morgun með því að blómsveigur var lagður að minnisvarða drukknaðra sjómanna við Glerárkirkju. Jónas Þorsteinsson skipstjóri, 86 ára, og Ragnar Franzson stýrimaður, 85 ára, lögðu blómsveiginn. Þeir eru líklega aldursforsetar togarajaxlanna á Akureyri.  Séra Gunnlaugur Garðarsson flutti minningarorð.

Sameiginlegur málsverður, jaxlamatur, verður snæddur í matsal Brims, gamla matsal Útgerðarfélags Akureyrar. Síðan fara þeir sem vilja í siglingu um Eyjafjörð með Húna II. //////þetta er glæsilegt að gera þetta þarna og Togarasjómenn  og jaxlar sem  gerðu garðinn  frægan og  voru okkar hetjur sem og allir sem sjó stunduðu á þessum tímum og auðvitað enna´+ eldri tímum,það er gaman að þeir skuli gera þetta, koma saman og heiðra minningu hinna sem  ekki gátu farið ,og þeirra sem fallnir eru bæði til sjós og lands.þarna hefði mig langað til að vera fór reyndar nokkra  túra en vann i Slipp. annars i 46 ára og kynntist þar mörgum þessara manna/Halli gamli


mbl.is Endurfundir togarajaxla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045685

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband