Vilja ekki hækka fasteignagjöld/auðvitað ekki þau ættu að lækka heldur !!!!

Vilja ekki hækka fasteignagjöld
Innlent | mbl.is | 5.7.2010 | 19:39

Ráðhús Reykjavíkur. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík óskuðu á fundi borgarráðs í dag eftir nákvæmum upplýsingum um áhrif breytinga fasteignamats á borgarsjóð. Fram kemur í tilkynningu frá flokknum, að fulltrúarnir hafi ítrekað mikilvægi þess að mæta breytingunni ekki með auknum álögum á borgarbúa, heldur með hagræðingu, áframhaldandi aðhaldi og árangri í rekstri.

Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að síðasti ársreikningur borgarinnar hafi staðfest góðan rekstur sem skilaði mun betri árangri en spáð var.

,,Þessa stöðu verður að nýta í þágu borgarbúa sem við þessar aðstæður geta ekki greitt hærri skatta. Öll vinna borgarstjórnar undanfarin misseri hefur miðast við að standa með borgarbúum og mikilvægt er að ekki verði tekið öðruvísi á málum enda ekki ástæða til," segir Hanna Birna í tilkynningunni.////þetta er bara rétt ákvörðum minna manna,það er ekkert vit i að hækka þessi gjöld nú ,eins og ástæður eru,það er þó betri raðstöfun sem V.G. voru með að hækka heldur útsvarið það er þá á tekju en ekki verið að hækak á þá sem enga vinnu hafa ,er það ekki betra að tvennu illu,en svona er þetta ,Besti flokkurinn og samfylgingin eru á eyðslufylliríi að mínu álíti og ætla að gera svo margt,þegar  engir peningar eru afgangs og ekki annað til en að spara!!! en að taka lán til að þegar borgina við þessar aðstæður og skapa vinnu eins og þeir segja ,er stór spurning,að er annað að ríkið geri slíkt og komi af stað atvinnu sem skilar arði eins og vegagerð og öðru sem framkvæmdir í einkageira koma okkur af stað Lífeyrasjóðirnir biða með peninga  til þessa verkefnis og ekkert gerist !!!! en ætli að Borgarbúar fari ekki að skoða þetta betur ,að þeir kusu yfir sig fók sem veit ekki hvað það er að gjöra/Halli gamli


mbl.is Vilja ekki hækka fasteignagjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045665

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband