Harma ákvörðun sjávarútvegsráðherra///þarna ættlar hann bakdyrameðgin i fyrninguna!!!!

Harma ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Innlent | mbl.is | 18.7.2010 | 9:23

Frjálslyndi flokkurinn vill að bætt verði við... Stjórn Frjálslynda flokksins segist í ályktun harma það að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætli enn einu sinni að fara eftir ráðleggingum Hafrannsóknarstofnunnar varðandi hámarksafla á komandi fiskveiðiári.

Flokkurinn krefst þess að bætt verði við veiðiheimildir þannig að þorskaflinn verði aukinn að a.m.k. um 100 þúsund tonn.

Ályktunin er svohljóðandi

 

„Stjórn Frjálslynda flokksins harmar það að sjávarútvegsráðherra ætli einu sinni enn að fara eftir reikningsfiskifræði Hafrannsóknarstofnunnar varðandi hámarksafla á komandi fisveiðiári. 

 Stjórn Frjálslynda flokksins telur að í því hörmulega ástandi sem nú ríkir í þjófélaginu sem kemur fram í  miklu og langvarandi atvinnuleysi og niðurskurði á öllum sviðum velferðarkerfisins að það sé ekki forsvaranlegt að fara í blindni eftir ráðgjöf sem aldrei hefur gengið upp og gengur í berhögg við viðtekna vistfræði.

Stjórn Frjálslynda flokksins krefst þess að bætt verði við veiðiheimildir þannig að þorskaflinn verði aukinn um a.m.k. 100 þúsund tonn og sömuleiðis blasir við að rétt sé að auka sókn í aðrar fisktegundir. Auknar veiðar leiða til aukinna tekna og draga strax úr atvinnuleysi.

Stjórn Frjálslynda flokksins undrast og lýsir yfir miklum vonbrigðum með að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar virðist ekki ætla að breyta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í haust eins og gefin voru hátíðleg fyrirheit um í aðdraganda síðustu kosninga og fest var með skýrum hætti í stjórnarsáttmálann.

Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar frjálsar  á úthafsrækju enda hefur það verið baráttumál Frjálslynda flokksins frá stofnun hans að fækka kvótabundnum tegundum.          

Það er krafa stjórnar Frjálslynda flokksins að ríkisstjórn Íslands virði mannréttindi íslenskra sjómanna sem ekki eru virt í dag samkvæmt áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007.//////samt þó þeim líki ekki  ekki að hann og ríkisstjórinn geri þetta er ekki það með sagt að þetta sem hann er að gera núna með Rækjuna er og tak af kvóta er það sem kallast að fara bakdyramegin inn i fyrningaleiðina,maður sér ekki annað það hlaut að vera ð þessi trúður sæi sér leið til þess að' setja allt á annan endann,ekki annað séð/Halli gamli


mbl.is Harma ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband