Wenger: Verðskuldað rautt spjald/Arsenal vann og það gilfdir fyrir okkur aðdáendur!!!!

Wenger: Verðskuldað rautt spjald
Íþróttir | mbl.is | 17.10.2010 | 10:46

Jack Wilshire og Nikola Zigic, rétt eftir brotið umrædda.Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá dómara leiksins gegn Birmingham í gær að reka Jack Wilshere af velli í uppbótartíma.

Hinn 18 ára gamli Wilshere braut þá illa á Nikola Zigic, framherja Birmingham, og fékk umsvifalaust rauða spjaldið.

„Þetta var rautt spjald. Hann misreiknaði sig í tæklingunni, missti boltann frá sér, og það gerði útslagið. Þetta var ekki af ásettu ráði," sagði Wenger.

Alex McLeish, knattspyrnustjóri Birmingham, sagði að tæklingin hjá Wilshere hefði verið svipuð og hjá Martin Taylor, varnarmanni Birmingham, sem fótbraut Eduardo hjá Arsenal illa snemma árs 2008.

„Við höfum setið uppi með Eduardo-málið í meira en tvö ár. Martin Taylor misreiknaði sig í þeirri tæklingu og olli hræðilegum meiðslum, en þessi tækling hefði getað valdið því sama. Við vitum að Jack Wilshere er ekki grófur leikmaður en þetta sýnir okkur að allir geta misstigið sig í þessari íþrótt," sagði McLeish við BBC.

Wilshere sendi sjálfur frá sér afsökunarbeiðni í gærkvöld og sagði að það hefði verið rétt að reka sig af velli.////horfði á leikinn hann góður baráttuleikur sog skemmtilegur,en þetta ljót og ó.arfa brot og refsingin rétt,en Birmingham er sterkt lið og er að koma vel út og til alls líklegt/en mínir menn unnu og það gleður okkar hjarta/þegar bæði M,U.N og Chelsea gerðu jafntefli/Halli gamli


mbl.is Wenger: Verðskuldað rautt spjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband