Sterk andstaða gegn flatri lækkun/ef af einum var stolið,var það þá ekki öllum,borgið til baka!!!

Sterk andstaða gegn flatri lækkun
Innlent | Morgunblaðið | 29.11.2010 | 5:30

Allir þurfa húsnæði. Til tíðinda dregur í viðræðum stjórnvalda, fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna á næstu dögum, að mati Arnars Sigmundssonar, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða.

Að sögn Arnars hafa lífeyrissjóðirnir ekki breytt um afstöðu gagnvart flatri lækkun fasteignalána og að fulltrúar þeirra í viðræðunum leggi fyrst og fremst áherslu á að samkomulag um sértækar aðgerðir handa skuldsettustu heimilunum náist. Í ljósi þess styðji þeir til að mynda hækkun vaxtabóta.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins deila fulltrúar fjármálafyrirtækjanna þessu sjónarmiði með lífeyrissjóðunum og þeir sem blaðið ræddi við úr þeim ranni telja afar ólíklegt að niðurstaða viðræðnanna verði einhverskonar flöt lækkun á fasteignalánum.

Þessi afstaða ræðst fyrst og fremst af því að flöt lækkun myndi annarsvegar bitna á eignum lífeyrissjóðanna – sem eru réttindi sjóðsfélaga – og hinsvegar á eignum eigenda bankanna sem eru í þessu tilfelli útlán til fasteignakaupa. Viðskiptabankarnir hafa mismikið borð fyrir báru með hliðsjón af eiginfjárstöðu þeirra.////eins og allir vita sem vilja vara öllum mismunað þarna ekki bara sumum sem eru með þessi vátryggðu lán!! af hverju er ekkert réttlæti þarna og látið það sama yfir alla ganga og gera svo bara betur við þa´sem verst eru staddir sem eru margir,það sem við verum að kalla  stolið af fólki ber að skila og það þó það kosti þessi fjarmalafyrirtæki pening lífeyrissjóðir einnig þeir verð að taka tillit til þessa,nóg hefur verið bruðlað þar ,að þetta er litið á móti því,þar er sama liðið og geri þetta ,einnig mikið i Bönkunum,eiga þeir að stjórna eða Ríkisstjórnin/Halli gamli


mbl.is Sterk andstaða gegn flatri lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband