109 milljarða afgangur/gott að fá jákvæðar fréttir einnig !!!!

109 milljarða afgangur
Viðskipti | mbl.is | 5.1.2011 | 9:00

Gámar í Sundahöfn. Afgangur af vöruskiptum við útlönd nam 10,4 milljörðum í nóvember samkvæmt staðfestum tölum Hagstofu. Fyrstu 11 mánuði ársins var afgangur af vöruskiptum 109 milljarðar króna en var 75,1 milljarður á sama tímabili árið áður.

Fyrstu ellefu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 511,1 milljarð króna en inn fyrir tæpan 402,1 milljarð króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 109 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 75,1 milljarð á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 33,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Verðmætari útflutningur

 

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 67,6 milljörðum eða 15,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,7% meira en á sama tíma árið áður. 

Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur eykst á ný

 

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 33,8 milljörðum eða 9,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum./////það er einnig gott á þessu nýja ári að fá jákvæðar fréttir einnig ekki bara bölmóð,það er nóg af honum,er það ekki,en þetta er framar vonum og það gott en ,það verður að taka meira á og skila meiri hagnaði með því að koma ýmsum verkum i framkvæmd sem skila arði og eru mannfrekar,ekki spurning ,hvernig að er best eru margar leiðir sem við verðum að haska okkur í/Halli gamli


mbl.is 109 milljarða afgangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045814

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband