Stjórnarþingmenn kallaðir til kvótasamráðs/er þetta allt uppi á borðum ,og samvinnan i reynd???

Stjórnarþingmenn kallaðir til kvótasamráðs
Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2011 | 10:30

Bryggjuspjall við Hafnarfjarðarhöfn. Stefnt er að því að nýtt frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun komi fram fyrir lok þessa mánaðar. Að málinu er unnið í ráðuneytinu og á Fiskistofu. Síðustu tvær vikur hafa sex þingmenn stjórnarflokkanna komið að samráði við gerð frumvarpsins.

Af hálfu Vinstri-grænna eru það Atli Gíslason, Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir og af hálfu Samfylkingarinnar voru tilnefnd þau Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Róbert Marshall.

Fram kemur í blaðinu Fréttum í Vestmannaeyjum í vikunni að hugsanlegt sé að pottar fyrir byggðakvóta, línuívilnun og fleira gætu orðið samtals 20% og koma fram miklar áhyggjur verði það raunin. „Í dag er svokallaður ráðherrapottur um sex prósent en talið er að hann geti jafnvel farið upp í 20 prósent, sem hefði hrikalegar afleiðingar fyrir Vestmannaeyjar,“ segir í Fréttum.

Ekkert fast í hendi, en 10% hafa verið nefnd

Þar kemur einnig fram að Atli Gíslason alþingismaður hafi sagt á fundi í Eyjum nýlega að pottarnir færu í 10%. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Atli að hann hefði nýlega setið fund með útvegsmönnum í Eyjum og farið þá vítt og breitt yfir stöðuna. „Ég talaði heiðarlega og opinskátt um ýmsa möguleika, en boðaði ekki neina niðurstöðu,“ segir Atli.

„Með einni undantekningu þó. Ég sagði að sáttaleiðin, svo langt sem hún næði, yrði grundvöllur þeirrar vinnu sem væri í gangi. Ég sagði að 10% væri eitt þeirra viðmiða sem væri nefnt, en jafnframt að ekkert væri fast í hendi. Ég talaði opinskátt um stöðuna, en boðaði engar ákvarðanir og er heldur ekki í neinum færum til þess. Ég tel hins vegar að það sé út úr kortinu að 20% fari í þessa potta,“ sagði Atli.

Um samráðshópinn segir Atli að um pólitískt samráð stjórnarflokkanna sé að ræða, en sjávarútvegsráðherra myndi eiga lokaorðið við gerð frumvarpsins.

Fram kom í samtali við Jón Bjarnason í Morgunblaðinu í lok nóvember, undir fyrirsögninni Blönduð leið potta og samninga, að stefnt er að því að frumvarpið verði að lögum á vorþingi og komi til framkvæmda, a.m.k. að hluta, við upphaf nýs fiskveiðiárs í haust.

Þar kemur fram að útgangspunktur við þessa vinnu er blönduð leið þar sem annars vegar verður byggt á því aflahlutdeildarkerfi sem notað hefur verið undanfarna áratugi og hins vegar á svokölluðum pottum sem tækju meðal annars tillit til byggðarlaga og sérstakra aðstæðna.

Margvíslegir samningar yrðu gerðir

Samningar yrðu gerðir við útgerðarfyrirtæki, en jafnframt er til skoðunar að samningar yrðu einnig gerðir við byggðarlög. Ákvæði um veiðigjald koma einnig til endurskoðunar og m.a. horft til upphæða og ráðstöfunar til sjávarbyggða og hafrannsókna í því sambandi. Í samtalinu sagði ráðherra meðal annars:

„Í heildina litið er hugmyndin sú að nýtt kerfi verði lagt upp þannig að ákveðið hlutfall af heildarafla verður tekið til slíkrar ráðstöfunar og ákveðin hlutdeild til núverandi aflahlutdeildarhafa, þannig að þeir hafi líka sína tryggingu. Þeir gætu líka hugsanlega sótt í þá potta sem verður úthlutað með öðrum hætti og með önnur markmið í huga. Málefni nýliðunar verða skoðuð sérstaklega.“

Ekkert svar í fimm mánuði

„Við höfum reynt að vera í sambandi við oddvita ríkisstjórnarinnar, en ekki haft erindi sem erfiði,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Í næstu viku verða fimm mánuðir liðnir síðan við báðum um fund með Jóhönnu og Steingrími og þessi ósk LÍÚ, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fiskvinnslustöðva hefur verið ítrekuð en þau hafa ekki fundið tíma til að hitta okkur.

Við hittum sjávarútvegsráðherra hins vegar í vikunni, en höfum enga aðkomu og engar upplýsingar um innihald þeirrar vinnu sem er í gangi og vitum ekki hvað stjórnarflokkarnir eru að gera. Frumvarpið á þó að byggjast á samningaleið og það er vægast sagt mjög sérstakt, ef fólk ætlar að semja, að þá skuli bara annar aðilinn vera við samningaborðið,“ segir Friðrik.//////svari nú hver fyrir síg sem þetta les,það þarf að gera til að setja sig inn i vinnubrögðin!!!þetta er forkasteinlegt algjörlega ekki annað,það ber að hafa samráð og ekkert annað  í stöðunni við eigum fiskin ekki er um það deilt við verum að láta veiða hann á sem hagkvæmasta hátt,hvað atvinnugeirann  ekki á einhvern hátt verndaður ,það er svo vitlaust að rústa þessari grein með því að láta bara hin og þessa veiða þetta á smábátum eða svo allan ársins hring,það er sem betur fer minkað niður i nánast ekkert þessi sjóslysatíðni af því að það er stærri og betri skip sem veiða fiskin allavega um vetrartiman,það mætti auka a´sumrin enda gert og gefst vel!! en það er vinstra fólkið sem vill bara bylta öllu án þessa að hafa i hlutunum vit það er ljótt að verða að segja svona en þetta er staðreynd!! en svo má öllu hagræða i rólegheitum það er einnig gott með en að ættra að kyrkja núverandi útgerð með því er ekki hægt,aldrei meiri þörf fyrir gjaldeyrir en nú,og ætta þessir menn sem að þessu standa að koma okkur til falls algjörlega,það má bæta ekki bylta!!og auka aflans mikið/Þar er af að taka/Halli gamli


mbl.is Stjórnarþingmenn kallaðir til kvótasamráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband