City með einn sigur á Old Trafford í 26 leikjum/spennan eykst mjög!!!!!!

City með einn sigur á Old Trafford í 26 leikjum
Íþróttir | mbl.is | 12.2.2011 | 9:36

Carlos Tévez og Ro Ferdinandi í óvenjulegum stellingum í...Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Stórleikur umferðarinnar fer fram á Old Trafford í hádeginu í dag þegar Manchester-liðin United og City leiða saman hesta sína. Arsenal og Liverpool verða í eldlínunni síðar í dag en Englandsmeistarar Chelsea eiga ekki leik fyrr en á mánudaginn.

Manchester United nær sjö stiga forskoti á toppnum takist liðinu að leggja City en fyrri leik liðanna á tímabilinu lyktaði með markalausu jafntefli. Fari Manchester City hins vegar með sigur af hólmi galopnar liðið toppbaráttuna í deildinni en City er fimm stigum á eftir United en hefur þó leikið einum leik meira.

United hefur haft gott tak á City á heimavelli en Manchester City hefur aðeins unnið einn af síðustu 26 leikjunum sínum Old Trafford. Í fyrra fagnaði United 4:3 sigri í hreint mögnuðum leik þar sem Michael Owen skoraði sigurmarkið á 5. mínútu í uppbótartíma.

Leikir dagsins:

12.45 Manchester Utd - Manchester City

15.00 Arsenal - Wolves

15.00 Birmingham - Stoke

15.00 Blacpool - Aston Villa

15.00 Liverpool - Wigan

15.00 WBA - West Ham

15.00 Blackburn - Newcastle

17.30 Sunderland - Tottenham
/////spennan eykst og það gaman að hún helst fyrir okkur áhugamenn um knattspyrnu og maður verður ekki spámaður i dag bara vonar að spennan haldi það er mest gaman og auðvitað að sja´mörk og góðan Bolta!! en  spádómana læt ég aðra um en held náttúrleg með mínum mönnum Arsenal,svo gamall Leedsari og auðvitað Framari/en það skiptir ekki máli við horfum bara í snilldina einnig/Halli gamli


mbl.is City með einn sigur á Old Trafford í 26 leikjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband