Vefsíðu til stuðnings Icesave var eytt/það er verið að ljúga að fólki ekki spurning,þetta sem á að borga er áhættufé sem við tökum ekki þátt í ,als ekki!!!!

Vefsíðu til stuðnings Icesave var eytt
Innlent | mbl.is | 15.2.2011 | 10:39

 Síða sem stóð fyrir undirskriftasöfnun til stuðnings þess að Icesave-samningurinn yrði samþykktur var eytt í gærkvöldi eftir að fyrirtækinu sem vistaði síðuna barst kvörtun um að á henni væri verið að safna ólöglegum gögnum.                                                    Þeir sem vistuðu síðuna lokuðu henni og eyddu henni,“ sagði Róbert Breiðfjörð Jóhannesson, sem stóð fyrir undirskriftasöfnun á netinu þar sem lýst er yfir stuðningi við að Icesave-samningurinn verði samþykktur á þingi og hann staðfestur án þjóðaratkvæðagreiðslu. Róbert sagði að á þeim 20 tímum sem síðan var opin hefðu um 1500 undirskriftir verið komnar á síðuna og um 17.000 heimsóknir.

„Það var einhver sem hafði samband við  weebly.com, sem vistaði síðuna, og sagði að á síðunni væri verið að safna ólöglegum gögnum. Þeir sáu að það var búið að vera mikil trafík á síðunni og mikil gagnasöfnun og eyddu henni um kl. 19 í gær án þess að hafa samband við mig.“

Róbert sagðist hafa haft samband við stjórnendur weebly.com og útskýrt fyrir þeim hvað undirskriftasöfnunin hefði gengið út á og þeir hefðu beðist afsökunar, en síðunni hefði verið eytt og ekki væri hægt að endurvekja hana eða þær undirskriftir sem búið var að safna.

Róbert sagðist ekki vita hver hefði haft samband við weebly.com, en það hljóti að vera einhver sem sem væri eitthvað í nöp við þessa undirskriftasöfnun. Viðbrögð við síðunni hafi verið mjög mikil og meiri en hann átti von á.

Róbert sagðist vera hættur undirskriftasöfnun fyrst svona hefði farið.

Þriðja umræða um Icesave-samninginn hefst eftir hádegið í dag, en stjórnarmeirihlutinn stefnir að því að atkvæðagreiðsla um hann fari fram í þessari viku. ///þekkjum við þessar aðferðir ja´því miður svona átti að koma fram bæði við 1 og 2 í Icescave og láta okkur borga mögglunarlaust en svo for að fólkið áttaði seig og  sá að vara varið að ljúga plata og svíkja,en það er það samt uppá teningnum nú þetta er bara gemling og ekkert annað,og við eigum ekki að borga þetta/ekki að kaupa sig út úrr löglegum samningum ,það eru landráð að mínu mati og 65% þjóðar vorar,ef þetta verður gert er allt komið i bál og brand og tilleikurin eftir því/ef menn vilja kljúfa málin i svona mali er þeim orðið halt,það sama er með ESB og fleira sem þessi stjórn ætlar kvaðs  m það kostar að koma okkur i/en við vonandi berum það og þetta undir þjóð vora/Halli gamli


mbl.is Vefsíðu til stuðnings Icesave var eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045805

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband