Breytt stjórnskipan Íslands/Nei það ekki rétt,það er bara komin tími á að virkja þetta oftar!!!

Breytt stjórnskipan Íslands
Innlent | mbl.is | 20.2.2011 | 16:23

Mynd 519950Einar Mar Jónsson stjórnmálafræðingur segist telja afar erfitt að spá fyrir um hvernig þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave samningana gæti farið. Að vissu leyti sé búið að breyta stjórnskipan landsins og hann segir ákvörðun forsetans hafa komið sér nokkuð á óvart.

„Margir höfðu spáð því að ríkisstjórnin myndi segja af sér, ef forsetinn staðfesti ekki lögin. En það virðist ekki ætla að gerast,“ segir Einar. „En það eru viðbrögð Hollendinga og Breta sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Margir telja að þeir gætu dregið tilboð sitt til baka.“

„Að vissu leyti er búið að breyta stjórnskipan Íslands. Þó að þetta ákvæði hafi alltaf verið til staðar, þá er þetta í þriðja sinn sem núverandi forseti beitir því til þess að vísa lögum til þjóðarinnar. Þetta hlýtur að  þrýsta enn meira á breytingar á stjórnarskránni og að ný lög um þjóðaratkvæðagreiðslur verði sett.“

„Ég held að úr þessu sé enginn stjórnmálaflokkur neitt sérlega ánægður með þetta ákvæði, að forsetinn hafi þetta vald einn í hendi sér. Hann getur í rauninni vísað öllum lögum sem koma frá þinginu til þjóðarinnar,“ segir Einar.

„Þetta er ný tegund af löggjafarvaldi. Það má velta því fyrir sér hvers vegna hann vildi ekki staðfesta þessi lög. Til dæmis var fjárlagafrumvarpið mjög umdeilt og fór í gegn með færri atkvæðum á þingi en Icesave frumvarpið.“

Einar segir að synjunin geti hugsanlega aukið vinsældir Ólafs Ragnars meðal þjóðarinnar. „En aðalmálið er hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir okkur sem þjóð. Núna er tvisvar búið að gera samninga sem njóta fulltingis ríkisstjórnar og þings, en svo getur forsetinn snúið því á haus.“

Í yfirlýsingu forsetans segir að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram svo fljótt sem auðið er. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í dag að hún gæti hugsanlega verið haldin eftir mánuð eða svo./////við sem höfum lifað tímanna tvenna munum alt frá 1944 að um þetta ákvæði hefur verið  rifist út i eitt, og aftur og aftur, en niðurstaðan er auðvitað sú að þetta ,er svona að hafa þarna síðasta varnaglar fyrir okkur fólkið í i landinu sem þetta snýst um er það ekki??? ,og þegar hann  er virkjaður ætta menn alltaf að taka þetta af okkur i huganum eða orðum,af hverju spyr maður bara?? það er og veður að vera einhver sem tekur af skarið þegar og ef mál komast í svona aðstæður,ekki bara vaða yfir allt og alla,það er ekki okkar mottó og þessa vegna er þessi ákvæði til komin ,ekki af eitthverri  illgirni eins og sagt er/Halli gamli


mbl.is Breytt stjórnskipan Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algerlega sammála þér þarna.

Jóhann Elíasson, 20.2.2011 kl. 16:57

2 identicon

Það er engin breytt stjórnskipan.Það er bara þegar það hentar ekki elítuni að það sé notað sem menn pirrast út í það.

Þetta ákvæði hefur allaf verið í stjórnarskrá, það er bara kominn forseti sem er að vinna vinnuna sína og hlustar á þjóð sína !

Öfugt við ríkistjórnina !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 20.2.2011 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045699

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband