Óvíst hvenær Landeyjarhöfn opnar/ekkert nýtt við þessa frétt!!!!

Óvíst hvenær Landeyjarhöfn opnar
Innlent | mbl.is | 23.2.2011 | 9:34

Sanddæluskipið Skandia.Sanddæluskipið Skandia getur ekkert unnið við dælingu úr Landeyjarhöfn í dag vegna veðurs. Veðurútlit næstu daga er ekki gott. Guðjón Egilsson, hjá Íslenska gámafélaginu, sem gerir skipið út, treystir sér ekki til að spá fyrir hvenær höfnin opnar.

Guðjón sagði að vel hefði gengið að vinna við sanddælingu í gær og þá hefði verið unnið allan daginn og fram eftir kvöldi þangað veðrið fór að versna. Hann sagði að dýpi við höfnina hefði ekki verið mælt síðustu daga og hann sagðist því ekki geta svarað því með neinni nákvæmni hversu mikil vinna væri eftir áður en hægt væri að opna höfnina.

Gunnar sagði að mikil aska væri í því efni sem Skandia hefði verið að dæla upp. Askan er úr gosinu ír Eyjafjallajökli.

Gunnar sagði að það væru ekki margir dagar það sem af er ári þar sem hægt hefði verið að vinna við sanddælingu úr Landeyjarhöfn. Skipið kom ekki til landsins fyrr en í febrúar, en Guðjón sagðist efast um að nokkuð hefði verið hægt að vinna í janúar vegna veðurs. Síðan skipið kom til landsins hefur ölduhæð sjaldan farið niður fyrir tvo metra við Landeyjarhöfn.

„Okkur fannst við vera orðnir nokkuð góðir í gær þegar ölduhæð fór niður í 1,6 metra, en síðan versnaði veðrið. Okkur vantar norðanátt,“ sagði Guðjón. Sunnanáttir hafa verið ríkjandi að undanförnu og ekki er sjáanlegt að það breytist neitt í bráð. Ölduspá Siglingastofnunar gefur ekki tilefni til bjartsýni um að Skandia geti unnið mikið næstu daga.///////það virðist ekkert ganga upp þessa daga þarna frekar en vantar/og það verður svo næstu daga og sennilega er en það úlvur  úlfur það er svo meðan vetrar og ölduhæð miklil en þetta kosta allt og ekkert i það spáð hvort þetta verðu nokkurn tíman bar i brók á veturnar/Halli gamli


mbl.is Óvíst hvenær Landeyjahöfn opnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þeir ættu að fara að gera fréttir um það þegar höfnin ER opin og spara þannig pláss.

Jóhann Elíasson, 23.2.2011 kl. 12:19

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

sæll Jóhann bloggvinur við erum þarna mikið sammála/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 23.2.2011 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband