Bensín hækkar vegna Líbíu ///þetta er er ekki retta nem að hluta það er bara um 3% olíu þarna!!!

Bensín hækkar vegna Líbíu
Innlent | Morgunblaðið | 9.3.2011 | 7:30

 Nýjasta hækkunin á eldsneytisverði er tilkomin vegna ástandsins í Líbíu en landið er stór birgir fyrir Evrópumarkað. Þetta segir Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri hjá N1.

Allir seljendur eldsneytis hækkuðu verð hjá sér í gær og í fyrradag, fyrst stóru félögin þrjú um fimm krónur á lítrann. Í kjölfarið fylgdu svo Atlantsolía, Orkan og ÓB sem hækkuðu sitt verð um hádegi í gær.

Í gærkvöldi var þannig ódýrasta bensínið að finna hjá Orkunni, 230,60 krónur á lítrann, en það dýrasta hjá Shell, Olís og N1, 231,90 krónur í sjálfsafgreiðslu. Hjá Orkunni kostaði dísilolían 235,50 krónur á lítrann en dýrasta olían var hjá stóru félögunum þremur, 236,80 krónur.

Magnús segir erfitt að segja til um framhaldið en það byggist á því sem kunni að gerast í Líbýu. Allar fréttir sem berist þessa dagana séu neikvæðar fyrir verðþróun. Enn sem komið er hafi þó báðir aðilar séð sér hag í að halda olíuhreinsunarstöðvum gangandi. Árásir á þær væru afleitar fyrir verðið. 

Verð á hráolíu lækkaði lítillega í morgun í viðskiptum í Asíu vegna vísbendinga um að önnur OPEC-ríki hafi í hyggju að auka framleiðslu til að mæta framleiðslutapinu í Líbýu. Þannig lækkaði verð á  Texas olíu um 67 sent tunnan og var 104,35 dalir í morgun. Verð á Brennt Norðursjávarolíu lækkaði um 76 sent og var 112,30 dalir tunnan. ////// þetta er akki nema að nokkru  rétt það er aðeins um 3% Olíu þatrna og sumar liðir sem selja ennþá OPEK var að tala um að auka þetta og vel það,og það varað lækkun út i heimi i gær!!! en það mun kannski halda áfram,og vonum við það,en ein og maður hefur sagt það er fyllsta ástæða til að fyljast betur með þessu hjá hinnu opinbera og sundliða reikninga,auðviða að meðan ríkið græðir einnig á hækkununum þá þeiga þeir,en þetta ber að skoða vel ekki bara Bíko og Húsamiðjuna/Halli gamli


mbl.is Bensín hækkar vegna Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045786

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband