Sólheimum boðin óskert framlög/haf það sem sannara reynist,samt er ekki samið,allt hefur hækkað!!!

Sólheimum boðin óskert framlög
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 10:23

Frá Sólheimum.Sveitarfélagið Árborg segir að Sólheimum ses. hafi verið boðið að gera þjónustusamning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 milljóna króna.

Fulltrúaráð Sólheima sendi í gær frá sér tilkynningu og sagði, að samningaviðræður við Árborg um nýjan þjónustusamning hefðu staðið yfir í rúma 3 mánuði án árangurs. Mikil óvissa sé um með hvaða hætti rekstur Sólheima verður tryggður.  Þessi staða sé algjörlega óviðunandi fyrir starfsemi Sólheima.

Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem segir m.a., að gert sé ráð fyrir að samningaviðræðum við Sólheima verði framhaldið eftir páska. Segir Ásta, að Sólheimum hafi verið boðið að gera samning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 milljóna króna. Á sama tíma þurfi flestar stofnanir ríkis og sveitarfélaga að taka á sig lækkun rekstrarframlaga á milli ára.

Tilkynning Árborgar er eftirfarandi:

Í janúar s.l. hófust formlegar samningaviðræður þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Suðurlandi og Sólheima ses. um áframhaldandi þjónustu Sólheima ses. við fatlaða íbúa á Sólheimum. Samningahópinn skipa tveir fulltrúar Sólheima og tveir fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar f.h. þjónustusvæðisins á Suðurlandi. Samkomulag var gert um að málefni samningaviðræðna yrðu ekki rædd við fjölmiðla og hefur það samkomulag verið virt af hálfu beggja aðila, allt þar til ályktun fulltrúaráðs Sólheima var send fjölmiðlum í gær.

Í tilefni af ályktuninni skal tekið fram að allt frá því að ákvörðun var tekin um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hefur Sólheimum ses. verið boðið að gera samning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 millj. kr. Bent er á að á sama tíma þurfa flestar stofnanir ríkis og sveitarfélaga að taka á sig lækkun rekstrarframlaga á milli ára.

Jafnframt því að leitast hefur verið við að ná samningi fyrir árið 2011 hefur verið unnið að gerð samnings vegna áranna 2012 til 2014. Af hálfu þjónustusvæðisins hefur ítrekað verið boðið að gerður yrði samningur til lengri tíma en eins mánaðar í senn.

Legið hefur fyrir frá því að ákvörðun var tekin um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga að greiðslur skv. nýju mati á þjónustuþörf fatlaðra einstaklinga, svonefndu SIS mati, munu hefjast um næstu áramót, og mun væntanlegur samningur fyrir árin 2012 til 2014 taka mið af því.

Af hálfu þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Suðurlandi er gert ráð fyrir að
samningaviðræðum við Sólheima verði framhaldið eftir páska.////það er náturlega rétt skal vera rétt en það verður að semja um meira þetta hefur sérstöðu þessi staður og ríki og sveitafélagið verða að ver þarna saman ef vel á að fara að spara þarna er eflaust gert en það er ekki hægt að leggja þetta niður eða fara að reka þetta á gamla mátun með harðri hendi og minka við fólkið mikið,ríkið getur ekki komist hjá því að gera þarna bragabót/Halli gamli


mbl.is Sólheimum boðin óskert framlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Er ekki bara búið að ganga illa að semja vegna þess að yfirmennirnir vilja ekki missa spenann sem þeir hafa fengið að totta í svo mörg ár? Yfirmennirnir eru tilbúnir að fórna hagsmunum vistmanna svo yfirmennirnir haldi öllu sínu.

Tómas Waagfjörð, 17.4.2011 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband