„Grímulaus ESB-aðlögun“svona lyggur þetta fyrir okkur flestum!!!!

„Grímulaus ESB-aðlögun“
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 21:22

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Einbeittur vilji stjórnvalda um Evrópusambandsaðild er stöðugt að koma í ljós. Vinstri grænir bera kápuna á báðum öxlum. Látast vera á móti ESB aðild, en vinna hins vegar í nánu samstarfi við Samfylkinguna að því að tryggja ESB aðildina,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 
heimasíðu sinni í kvöld.

Hann gerir síðan að umfjöllunarefni sínu fund sameiginlegrar þingmannanefndar Evrópuþingsins og Alþingis hér á landi í tengslum við umsóknina um aðild að ESB. Þar stóð til að samþykkja ályktun en hætt var við það á síðustu stundu vegna þess að ekki var samstaða innan nefndarinnar um að það yrði gert. Kom meðal annars fram hörð gagnrýni á drög að ályktun sem lágu fyrir fundinum.

„Í þessum drögum er Ísland hvatt til að undirbúa aðild að stefnu ESB í landbúnaðar og byggðamálum og hefja vinnu við að setja á laggirnar nauðsynlegar stofnanir sem þurfa að vera til reiðu þegar til aðildar kemur, til þess að geta hrint stefnumálum á þessum sviðum í framkvæmd og njóta þess stuðnings sem ESB aðildin hefur í för með sér,“ segir Einar.

Þetta þýði á mæltu máli að setja eigi á stofn Greiðslustofu, eða stofnun landbúnaðarins, sem sé „skilmálalaust partur af aðlöguninni inn í Evrópusambandið og hefur verið sem eitur í beinum ESB andstæðinga í VG.“

Einar segir ljóst að ályktunardrögin séu á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna til jafns við Evrópuþingmennina. „Í þeim birtist okkur grímulaus tilhneiging stjórnarflokkanna til ESB aðlögunar. Ályktunardrögin eru óræk heimild um það,“ segir Einar á heimasíðu sinni.///við flest ef ekki öll sem erum á móti inngöngu þarna i ESB eru þarna á sama máli og Einar þetta sem hann segir þarna er allt sem segja Þarf ekkert við það að bæta,þetta er ekki i lagi og er bara skömm og ekkert annað við okkur sem erum 60-70% þjóðarinnar að koma svona fram við okkur/Halli gamli


mbl.is Grímulaus tilhneiging til ESB-aðlögunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband