Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð/við sem vorum unglingar um það að flugvöllur var byggður af bretum og eftir það höfum þarna leikvöll,og mikið gaman!!!!

Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 10:09

Háskólinn í Reykjavík. Risavaxin skógarsög, Raggi Bjarna og gönguferðir í Öskjuhlíðinni undir leiðsögn verða meðal þess sem verður um að vera á Öskjuhlíðardeginum

Hann verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, laugardaginn 7. maí og verður hátíðin sett klukkan 11 í Sólinni, sem er aðalbygging Háskólans í Reykjavík.

Að sögn Jóhanns Hlíðar Harðarsonar, upplýsingafulltrúa Háskólans í Reykjavík, tekur síðan við fjölbreytt dagskrá.  Þar má nefna siglingar um Fossvog, sjóbað í Nauthólsvík,  rathlaupsleik fyrir fjölskylduna og gönguferðir um Öskjuhlíðina, en þar verða meðal annars skoðaðar stríðsminjar undir leiðsögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings.

Einnig verður starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar kynnt.

Á bílaplani HR verður stærðarinnar skógarsög sem breytir trjám í verðmæta nytjahluti og í aðalbyggingu HR sýna nemendur HR og Listaháskólans gagnvirk listaverk sem þeir  hafa  skapað  í  vetur. 

Söngvarinn   Ragnar  Bjarnason skemmtir svo gestum  í  hádeginu í aðalbyggingu  HR og fjögur ljóðskáld flytja  ljóð  sín  í  hlíðum   Öskjuhlíðar  í  lok  skipulagðra gönguferða. 

Undirritað verður samkomulag um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf  Reykjavíkurborgar,  Háskólans  í  Reykjavík  og   Skógræktarfélags Íslands  um  útivistarsvæðið  í  Öskjuhlíð  með  það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði.

Að undirritun lokinni heldur Jón Gnarr  borgarstjóri sýnikennslu í því hvernig búa á til moltu./////þetta gott að halda þessu sem útistasvæði og ganga þarna vel um ,þetta var hjá okkur her áður og mikið leikið sér

þarna,bæiðn fyrir og eftir herinn sem byggði flugvöllinn !!okkur ,þetta mikið fjör og gaman að leika sér

 stríðsminjum þarna, þetta er gósen útivistland fyrir bæði fullorðna og börn!! það að halda þessu við og hafa

 gæslu,þarna var ,og samráð fyrirtækja,en á ekki að vera!!!

þetta á að hafa svona og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband