Hætt að framleiða neftóbak verði frumvarp að lögum/Stóri bróðir að taka völdin!!!!!

Hætt að framleiða neftóbak verði frumvarp að lögum
Innlent | mbl.is | 11.5.2011 | 13:34

Mynd 563236 Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins segir í umsögn um nýtt frumvarp um tóbaksvarnir, að verði frumvarpið óbreytt að lögum verði framleiðslu á íslensku neftóbaki hætt.

Samkvæmt frumvarpinu, sem Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, lagði fram á Alþingi nýlega, verður  bannað að flytja inn, framleiða og selja allt bragð- og lyktblandað reyklaust tóbak. 

Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til upplýsinga frá ÁTVR um að engin sala hafi verið á lyktar- og bragðbættu reyklausu tóbaki á undanförnum árum og því  því muni frumvarpið ekki hafa áhrif á útgjöld og tekjur ríkissjóðs.

En í umsögn ÁTVR um frumvarpið, sem send var Alþingi í apríl, segir að neftóbakið, sem fyrirtækið framleiðir fyrir íslenskan markað og hafi verið framleitt frá því fyrir stríð, innihaldi bæði lyktarefni og bragðefni. Framleiðslu og sölu á neftóbakinu verði því hætt ef frumvarpið verður óbreytt að lögum,

Þá segir ÁTVR, að miðað við texta frumvarpsins yrðu reyklausar sígarettur, sem tóbaksframleiðendur hafi verið að þróa, bannaðar á Íslandi.

Sala á neftóbaki hefur aukist mikið undanfarin ár hér á landi. ÁTVR segir, að árið 2001 hafi salan verið 10 tonn á árin en um 25 tonn á síðasta ári. Tóbaksgjald hafi einnig hækkað mikið og fyrir árið 2001 var það rúmlega 20 milljónir en tæplega 100 milljónir árið 2010.

ÁTVR segir, að leiða megi að því líkum að verulegur hluti tóbaksins sé notaður í munn en ekki nef. Þá sé neftóbakið bleytt upp, sett í sprautu og síðan sé því sprautað í munnholið. Einnig sé það sett í grisjur og svo í munninn.///þessi boð og bann Ríkisstjórn er að koma aftan að okkur á allan vegu ekki bara einn heldur allt skal undir!!!  þessi boð og bönn þjóna ekki tilgangi það bara eykur smygl og ekkert annað!! en það er hægt að nota áróður fyrir heilsu og þetta spillir henni,ein og það sem er vanamyndandi 'afengi eyturlyf og matarfíkn og spilafíkn svo eitthvað sé upp talið en að banna hlutina er ekki það m við viljum, hættum bara sjálf ef við viljum og rekum  öll áróður gegn þessu ekkert annað!!! þessi forræðishyggja er að fara með þessa kalla þarna i Ríkisstjórn/Halli gamli


mbl.is Hætt að framleiða neftóbak verði frumvarp að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Eru nú sígarettuframleiðendur líka farnir að ota sínum tota á Íslandi. Var þeim það ekki nóg að banna allt tóbak annað en reyktóbak í vel flesum ESB löndum. Berjumst gegn hagsmunasamtökum sígaretturframleiðenda.

Tómas H Sveinsson, 11.5.2011 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045662

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband