Mikilvægt að vita um afstöðu VG/sammála þessu þetta er nauðsin!!!!!

Mikilvægt að vita um afstöðu VG
Innlent | mbl.is | 1.6.2011 | 15:14

Frá Alþingi. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagði á Alþingi í dag að nauðsynlegt væri að halda utandagskrárumræðu um afstöðu þingmanna Vinstri grænna til NATO og loftárásanna í Írak í ljósi þess að íslenska ríkisstjórnin hefði í dag fallist á að hernaðaraðgerðum þar undir merkjum NATO verði haldið áfram.

Bjarni sagði, að fulltrúar VG í utanríkismálanefnd og ýmsir ráðherrar flokksins hefðu lýst sig andvíga þessu. Þetta kallaði á utandagskrárumræðu á Alþingi um málið og það væri ekki hægt að ríkisstjórn léki tveimur skjöldum í utanríkismálum, hvort sem væri um að ræða Evrópumál eða mál sem snertu NATO.

„Í sjálfu sér er það ekki mitt vandamál að trúverðugleiki Vinstri grænna er enginn, hvorki í þessu máli né öðrum," sagði Bjarni. „En ég hef áhyggjur af því hvaða skilaboð ríkisstjórnin er að senda til umheimsins og að ríkisstjórnin talar út og suður í jafn mikilvægu máli og þessu." 

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins,  tók undir þetta og sagði mikilvægt að fram færi umræðu almennt um aðkomu VG að ákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Í orði segðist flokkurinn vera andvígan þessum aðgerðum en á borði samþykkti hann þær.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, sagði að ef einhverjir undruðust afstöðu VG í þessu máli hafi þeir ekki fylgst með. Flokkurinn væri andvígur aðild Íslands að NATO og hefði fordæmt loftárásirnar á Líbíu frá upphafi. 

„Það er óskandi að stærri hluti þessa þingheims væri með okkur í þeirri vegferð, að í verki sé Ísland friðsöm herlaus þjóð og sýni það á alþjóðavettvangi," sagði Guðfríður Lilja.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagðist vera til í taka utandagskrárumræðu um málið hvenær sem er, þess vegna þá þegar en hann væri upptekinn eftir klukkan 5. 

„Ég verð að koma (þingmönnum) VG til varna því þeir hafa verið fullkomlega samkvæmir sjálfum sér. Þeirra afstaða gagnvart Atlantshafsbandalaginu lá fyrir þegar þessi ríkisstjórn hóf störf. Og þeirra afstaða til Líbíu hefur einnig legið fyrir,"  sagði Össur.//////Þetta er svo að þessi mál verður að ræða V.G. hafa ekkert einkaleyfi á að segja þetta ,þetta er umræða sem verður að taka og gerum það ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Mikilvægt að vita um afstöðu VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband