Glutrað í pólitíska potta///Við sjáum ekki annað en allt fari í uppnám !!!!!!

Glutrað í pólitíska potta
Innlent | mbl.is | 8.6.2011 | 16:51

Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri... „Það er ánægjulegt að þorskstofninn sé að braggast svona veglega en við höfum miklar áhyggjur af því að það á að glutra því í einhverja pólitíska potta sem skila þjóðinni engu," segir Einar Valur Kristjánsson, útgerðarmaður í Hnífsdal, um veiðitillögur Hafró.

Einar Valur segist hafa viljað sjá tillögur um meiri þorskafla. Margir í greininni séu búnir að taka á sig miklar skerðingar á kvóta undanfarin ár og „mönnum sárnar það að fá ekki að njóta afrakstursins, þá ekki bara ég sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins heldur ekki síður sjómenn og landverkafólk." 

Einar Valur segir að í kvótafrumvörpunum sé talað um að taka helming af aflaaukningu og gera eitthvað annað við hana.

„Fólkið sem hefur verið að þreyja þorrann og góuna á ekki að fá að njóta þess. Það er verið að kasta langtímahugsun í þessu fyrir róða, það eiga alltaf einhverjir nýir aðilar að koma og njóta uppskerunnar. Þá hætta menn að hafa trú á þessu og fara að ganga verr um auðlindina. Það kemur sér ekki vel fyrir byggðarlögin, landsbyggðin mun gjalda þess," segir Einar Valur. 

Súrt bragð af nýliðuninni 

„Við erum búin að prófa allskonar sóknarmörk og alls konar önnur kerfi. Alltaf koma sömu mennirnir aftur og aftur inn í kerfið og selja sig út. Það er því súrt bragð af nýliðuninni, hún er ekki alveg glæný," segir Einar Valur og vísar þar til umræðunnar um strandveiðimenn sem seldu áður frá sér kvóta fyrir háar fjárhæðir en koma svo aftur inn í strandveiðar fyrir lítinn pening, samanber gagnrýni Gunnlaugs Hreinssonar, fiskverkanda á Húsavík, í Morgunblaðinu í dag./////Það er ekki spurning að allt þetta fer til fjandans ef svona fer,ekki er  um það spurning????svona aðferðir eru ekki til annars,allt í potta sem bara vinir og vandamenn fá ráðherraræði og ekkert annað!!!!! við verðum að trúa að þetta verði  ekki,annars fer  ílla!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Glutrað í pólitíska potta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045741

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband