Stórsigur á Austuríki og Ísland á EM/ til hamingju strákar með það,frábært!!!!!

Stórsigur á Austuríki og Ísland á EM
Íþróttir | mbl | 12.6.2011 | 17:58

Ingimundur Ingimundarson skorar úr hraðaupphlaupi í fyrri hálfleiknum. Íslenska landsliðið vann stórsigur á Austurríki, 44:29, í Laugardalshöll og tryggði sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla sem fram í Serbíu í janúar á næsta ári.

Íslenska landsliðið varð að vinna leikinn og sýndi það frá fyrstu mínútur að það ætlaði sér ekkert annað en sigur. Það tók öll völd á leikvellinum frá fyrstu mínútu með frábærum varnarleik auk þess sem Björgvin Gústavsson fór á kostum í markinu. Þá var sóknarleikurinn mjög góður einum fyrstu 20 mínútur fyrri hálfleik. Staðan var 21:14, að loknum fyrri hálfleik.

Íslenska landsliðið lét síðan kné fylgja kviði í síðari hálfleik og jók forskot sitt smátt og smátt. Austurríska landsliðið hafði engin svör og lagði niður vopn sín smátt og smátt.

Ísland og Þýskaland fara því áfram úr þessu riðli undankeppninnar í lokakeppnina en Austurríki og Lettland sitja eftir.

Mörk Íslands:Aron Pálmarsson 8, Guðjón Valur Sigurðsson 8, Ólafur Stefánsson 7/2, Alexander Petersson 5, Róbert Gunnarsson 5, Arnór Atlason 4, Snorri Steinn Guðjónsson 2, Sverre Jakobsson 1, Arnór Þór Gunnarsson 1, Vignir Svavarsson 1.
Varin skot:Björgvin Páll Gústafsson 20 (þaraf 4 til mótherja). Hreiðar Levy Guðmundsson 6(þaraf 3 til mótherja).
Markahæstur Austurríkismannavar Roland Schlinger með 8 mörk og Konrad Wilczynski og Robert Weber skoruðu 5 mörk hvor.

Snorri Steinn Guðjónsson og Aron Pálmarsson, sem léku með gegn Lettum í undankeppninni á síðasta miðvikudag, tóku báðir þátt í upphitun íslenska liðsins./////! Þetta var frábært hjá strákunum okkar og landsliði í handbolta!!!TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!!!!Þetta setur okkur þátttakendur í Evropumoti í janúar 2012 og það verskuldað og við unnum okkur einnig í heimsmeistarakeppni stúlkna í dag eða við að vinna Úkraníu og ekki er það verra,semsagt allt gegn upp/Halli Gamli


mbl.is Ísland á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

flottastir

Ásdís Sigurðardóttir, 13.6.2011 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband