Umhverfisverndarsamtök fagna/// hvað yfirgangur er þetta í vinum vorum Bandaríkjamönnum ???

Umhverfisverndarsamtök fagna
Innlent | mbl.is | 20.7.2011 | 15:39

Hvalveiðibátur siglir inn Hvalfjörð.Umhverfisverndarsamtök hafa í dag lýst ánægju með þá ákvörðun Gary Locke, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, að senda Bandaríkjaforseta svonefnda staðfestingarkæru vegna hvalveiða Íslendinga.

Um er að ræða staðfestingu á því, að viðskiptaráðuneytið telji Íslendinga grafa undan friðunarmarkmiðum alþjóðlegra sáttmála. Samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í bandarískum lögum hefur Barack Obama, forseti, nú 60 daga frest til að ákveða hvort gripið verði til formlegra refsiaðgerða gegn Íslendingum.

Í tilkynningu frá samtökunum Humane Society International segir Kitty Block, að yfirgnæfandi meirihluti Bandaríkjamanna sé andvígur hvalveiðum. Nú gefist Obama forseta einstakt tækifæri til að sýna, að Bandaríkin séu í fararbroddi þeirra ríkja sem vilja stöðva hvalveiðar. 

„Það er ljóst að Ísland hættir ekki hvalveiðum fyrr en umheimurinn leggur áherslu á kröfur sínar með miklum efnahagslegum þrýstingi," er haft eftir Taryn Kiekow hjá samtökunum Natural Resources Defense Council. „Bandaríkin verða að gripa til alvarlegra refsiaðgerða."

Þá er haft eftir Leigh Henry, talsmanni World Wildlife Fund, að hvalir tilheyri engum einstökum þjóðum. Verndun hvala kalli á alþjóðlega samvinnu og trúverðugleiki Alþjóðahvalveiðiráðsins sé í húfi. //// Nú er maður hissa ??það okkur mátulega mjög kunnugt um vernd Dyra sem eru í útrymingarhættu,en það er ekki sá stofn sem við erum að veiða!!!svo sveltur 1/5 af heiminum og svo er B.N.A. i stríði og drepandi menn og skepnur!!!er ekki eitthvað að þarna,gott að vernda að sem þarf ekki spurning,en svo heimyfiraðgangur er engum okkar að skapi við viljum ekki láta spila með lífríkið svona allt lifir hvað á öðru í lífríkinu hvort eð er!! en við látum bara hart mæta hörðu og látum ekki kúga okkur til hlýðni,við reglur sem við ekki samþykkjum,hin langi vinskapur millum okkar má ekki skaðast af svona vitteysu//Halli Gamli


mbl.is Umhverfisverndarsamtök fagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045712

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband