Val um mat eða leigu/ þetta er erfitt mjög og atvinna í mörgum tilfellum mundi bjarga!!

um mat eða leigu
Innlent | Morgunblaðið | 21.7.2011 | 5:30

Félagsbústaðir reka 2.154 leiguíbúðir og borgin greiddi... „Það eru víða miklir erfiðleikar hjá fólki. Fyrir suma er þetta ekki spurning um að forgangsraða reikningum heldur spurning um hvort peningarnir fari í mat eða húsnæði,“ segir Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða sem reka félagslegar leiguíbúðir í eigu Reykjavíkurborgar.

Vanskil hafa aukist hjá Félagsbústöðum á síðustu árum og stefna í að verða um 100 milljónir á þessu ári, en voru 12 millj. árið 2007. Sigurður segir að Félagsbústaðir reyni að koma til móts við fólk í erfiðleikum, en ef enginn greiðsluvilji sé til staðar geti komið til þess að fólk sé borið út. Tíu leigjendur voru bornir út í fyrra, en félagið á 2.154 leiguíbúðir.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að markaðsleiga lækkaði fyrst eftir hrun, en hefur hækkað aftur. Fjöldi þeirra sem fá húsaleigubætur í Reykjavík hefur aukist um 60% á aðeins tveimur árum. Fjölgunin á almennum markaði er 164%. Sigurður segir að húsnæðismarkaðurinn hafi breyst á síðustu árum þannig að fólk með lágar tekjur eigi nánast enga möguleika á að eignast húsnæði. ////// Stór hluti þessa máls er kreppan og afleiðingar þessa að koma ekki fólki í vinnu,og framkvæmdir þess opinbera og einkageirann stopp,semsagt ekkert gert í gruninn til bjargar þessu ástandi,það sjá allir en vinstri villan er bara svona að gera fólkið ósjalbjarga,þetta er bara  smá dæmi allir hinir sem eiga íbuðir  þurfa margir hverjir að velta fyrir sér afborganir og mat!!! en eru að missa allt,sumir sluppu og það vel,en udirvandinn er óleystur atvinna og framkvæmdir,fyrr læknast þetta ekki///Halli Gamli


mbl.is Val um mat eða leigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband