„Það er ekkert eftir til að ná endum saman“/og það verður að ske fyrr en seinna!!!

„Það er ekkert eftir til að ná endum saman“
Innlent | mbl.is | 26.8.2011 | 12:54

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Skuldavandi heimilanna er orðinn slíkur að vart verður við ráðið lengur. Það hlýtur að vera forgangsverkefni okkar allra að leysa fólkið í landinu úr böndum húsnæðisskulda og atvinnuleysis,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í pistli á heimasíðu sinni í dag.
Hann bendir á að fyrir tveimur árum hafi ríkisstjórnin sagt að um þetta leyti hefði botninum á efnahagskreppunni hér á landi verið náð og heimili og fyrirtæki ættu að sjá ljós við enda ganganna. 

„Í dag er það öðru nær. Atvinnuleysi mælist enn rúmlega 6 prósent, næstum jafn mikið og í upphafi árs 2009. Engar afgerandi lausnir bjóðast á húsnæðisskuldum heimilanna og ekki hefur verið ráðist í neinar almennar aðgerðir til skuldaniðurfellingar, sem kæmu þeim best sem mest þurfa á þeim að halda. Sú leið sem ríkisstjórnin boðaði eftir fjöldamótmæli í október 2010, hin svokallaða 110% leið, hækkar nú að líkindum í 130% leið vegna efnahagslegrar óstjórnar og óþarfra vaxtahækkana sem ekki sér fyrir endann á,“ segir Sigmundur.

Hann segir að aðferðafræði ríkisstjórnarinnar hafi ekki virkað og aðeins boðið almenningi upp á vaxandi skatta og niðurskurð og enga efnahagsuppbyggingu og fjárfestingu.

„Þeir sem gátu í tvö ár haldið rekstri heimilisins á floti með því að nýta ævisparnað sinn, með snemmbærri úttekt lífeyrissparnaðar eða með söfnun kreditkortaskulda, eru nú þremur árum frá hruni komnir að enda vegarins. Það er ekkert eftir til að ná endum saman,“ segir ennfremur í pistlinum.//Hver vill mótmæla þessu hja´Sigmundi Davíð ,held það það séu fáir sem það geta,því öll könnumst við við fólk sem þetta er að ske fyrir á næstu dögum og árumalverlagt mjög og verður að leysa ekki spurning ,að svona gengur þetta ekki,og við krefjumst lausnar,og  Framsókn og Sjálfstæðismenn,og fólk ur öllum flokkum eiga að skilja svona,eða er það ekki???


mbl.is „Það er ekkert eftir til að ná endum saman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband