Styðja launahækkun til lögreglumanna/ alment gera allir það,ekki spurning!!!

Styðja launahækkun til lögreglumanna
Innlent | mbl.is | 21.9.2011 | 15:37

 Mikill meirihluti, eða 95,7% þeirra sem tóku afstöðu í könnun MMR fyrir Landssamband lögreglumanna, voru frekar eða mjög fylgjandi því að byrjunarlaun lögreglumanna yrðu hækkuð.

Tæp 76% þeirra sem tóku afstöðu töldu að dagvinnulaun nýútskrifaðs lögreglumanns úr Lögregluskóla ríkisins ættu að vera 300 þúsund á mánuði eða hærri, þar af töldu 14,1% að dagvinnulaunin ættu að vera 400 þúsund á mánuði eða hærri. Fleiri konur en karlar töldu að byrjununarlaun lögreglumanna ættu að vera 400 þúsund á mánuði eða hærri eða 16,4% kvenna borið saman við 12,0% karla.

Byrjunarlaun lögreglumanns í fullu starfi eru nú  211.802 krónur.

Gagnaöflun fór fram dagana 14. til 17. september 2011 og fjöldi svarenda var 926. Könnunin var unnin meðal Íslendinga á aldrinum 18 til 67 ára. Úrtakið var valið með símakönnun og svörun fór fram á netinu.

Gerðardómur mun í lok vikunnar kveða upp úrskurð um launakjör lögreglumanna. Lögreglufélög víða um land hafa haldið fundi að undanförnu og ályktað um stöðu mála. Í ályktun Lögreglufélags Reykjavíkur, sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi, segir m.a. að lögreglumenn geti ekki beitt verkfallsvopni í kjarabaráttu sinni líkt og aðrar stéttir hafi gert með viðunandi árangri.

„Vegna vopnlausrar baráttu okkar virðist ríkið ekki leggja mikla áherslu á að semja við lögreglumenn sem verða nú í annað sinn að lúta dómi gerðardóms í sinni kjarabaráttu," segir í ályktuninni. „Lögreglumenn eru þreyttir á ofríki því sem þeim er sýnt og skilningsleysi gagnvart neikvæðri launaþróun þeirra.  Við krefjumst leiðréttingu launa okkar miðað við launaþróun annarra stétta sl. 10 ár.  Lögreglumenn eiga betra skilið frá ríkinu."///Ekki mælir maður með öðru en mannsæmandi launum lögreglu,það gerum við öll að ég held!!  aftur er ég ekki hlynntur verkfallrétti þeirra als ekki þetta er raun og veru okkar her og her fer ekki í  verkfall!!,en það ber aftur að meta þeirra verk oftar,eins og gert er með alþingismenn og yfirmenn Ríkisstofnana!!!Ekki spurning að þeir eiga skilið góð laun,enda fáum við þá betra fólk til starfa,og það eitt er mikils virði mjög.lögregla á að vera okkar allra ,ekki bara að sekta og munhöggvast við okkur,enda við einnig að vera löghlýðin og kurteis,stöndum saman öll í þessu/Halli Gamli


mbl.is Styðja launahækkun til lögreglumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045696

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband