Verðum að berjast um efstu sætin/svona á baráttuhugurin að vera: áfram Arsenal !!!

Verðum að berjast um efstu sætin
Íþróttir | mbl.is | 17.10.2011 | 14:17
Per Mertesacker með boltann í leik Arsenal við Sunderland í gær.Per Mertesacker, þýski risinn í vörn Arsenal, segir nauðsynlegt fyrir Lundúnaliðið að komast sem fyrst í námunda við efstu liðin og taka virkan þátt í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu.

„Það er nauðsynlegt að við komust í hóp fjögurra efstu í það minnsta, en sem stendur erum við ekki með stigafjölda til að ræða mikið um það í bili. Það skiptir miklu máli að spila vel og klífa töfluna sem fyrst. Stuðningsmenn okkar verða að fá á tilfinninguna að við gefum allt okkar til að ná árangri.

Ég er kominn hingað til að spila fótbolta í hæsta gæðaflokki, í Meistaradeildinni, og vil ná árangri á öllum sviðum í vetur. Við eigum framundan tvo hörkuleiki í hverri viku og það er einmitt sú áskorun sem fylgir því að vera leikmaður Arsenal," segir Mertesacker á vef Arsenal.

Mertesacker, sem er rétt tæpir tveir metrar á hæð, er 27 ára gamall og hefur spilað 78 landsleiki fyrir Þýskaland. Hann kom til félagsins frá Werder Bremen í sumar en hafði áður leikið með Hannover.////Það er svo að baráttu andinn er mikilsverður,og það er það sem við eigum að hafa og gera ,annað er ekki til góðs!! og við verum að standa okkur svona,og þá kemur þetta að berjast um efstu sætin/Halli gamli


mbl.is Verðum að berjast um efstu sætin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband