Öryrkjar senda þingmönnum bréf/Þetta gott að mynna á einnig eldri Borgara sem ekkert hafa nema Ellilaun!!!!

Öryrkjar senda þingmönnum bréf Innlent | mbl.is | 29.11.2011 | 19:52 Öryrkjabandalagið hefur sent öllum alþingismönnum bréf þar sem þess er krafist að ríkisstjórnin hverfi þegar í stað frá áformum sínum um frekari skerðingar á lífskjör öryrkja fjórða árið í röð. Öryrkjabandalagið segir í bréfinu að áratuga löng réttindabarátta öryrkja hafi verið færð aftur um fjölda ára. „Í frumvarpi til fjárlaga árið 2012 er gert ráð fyrir að hækkun bóta almannatrygginga verði í samræmi við almenna hækkun kjarasamninga eða 3,5%. Sú krónutöluhækkun lægstu launa, sem kjarasamningar gera ráð fyrir, að fjárhæð 11.000 kr. er því ekki tryggð. Áætluð hækkun er einnig mun lægri en ákvæði 69. gr. almannatryggingalaga segir til um hvernig lífeyrisgreiðslur skulu breytast árlega. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar tengdri kjarasamningum frá 5. maí 2011 segir að stjórnvöld muni endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA. Hliðstæð hækkun til örorkulífeyrisþega og launþega á lægstu töxtum frá og með 1. febrúar nk. ætti að vera um 6,5%. Minnt er á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en þar segir orðrétt: „Mikilvægasta verkefni velferðarþjónustunnar og leiðarljós við forgangsröðun í núverandi aðstæðum er að vernda hag og stöðu barna og fjölskyldna þeirra, sem og þeirra sem lakast standa í samfélaginu.“ Þrátt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar munu eftirtaldir bótaflokkar ekki hækka ef fjárlögin verða samþykkt í óbreyttri mynd sem tilheyra lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð: mæðra- og feðralaun, umönnunargreiðslur, meðlagsgreiðslur, barnalífeyrir, barnalífeyrir vegna náms, dagpeningar slysabóta, dánarbætur vegna slysa og uppbætur vegna reksturs bifreiða,“ segir í bréfinu./////þarna eiga Öryrkjar og eldri Borgara sem ekkert hafa nema Ellilaunin að standa saman ekki spurning!!!! það er gert þarna mál úr þvi sem þessi stjórn ættlaði að vinna eftir að sjá um þetta fólk með reyst sem mynna má sín í þjóðfelaginu,og það ber að gera það,ef ekki ættum við bara sameiginlega að stofna  flokk saman,og fá okkar mál fram!!!það yrði stór flokkur ef allir yrðu með//Halli gamliÞingmenn hafa áður verið minntir á að taka tillit til öryrkja.
mbl.is Öryrkjar senda þingmönnum bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband