Segir vaxandi stuðning við Kanadadollar//Ég mæli með að skoða þetta í botn!!

Segir vaxandi stuðning við Kanadadollar Innlent | mbl.is | 25.5.2012 | 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. EfKanadadollari. Úr myndasafni. nahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka og að skoða ætti möguleikann á gagnkvæmu bandalagi.“ Þetta segir Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir, í viðtali við bandaríska viðskiptavefinn Business Insider í dag aðspurður um það af hve mikilli alvöru sé rætt um það á Íslandi að taka upp kanadíska dollarann í stað íslensku krónunnar. Heiðar segir ennfremur vaxandi stuðning í viðskiptalífinu á Íslandi við að taka upp kanadíska dollarann vegna gjaldeyrishaftanna sem séu að ganga að efnahagslífinu dauðu. Hann segir aðspurður styðja hugmyndina vegna þess að það sé engin fullkomin lausn til staðar og enginn fullkominn gjaldmiðill. Ísland þurfi á lausn að halda innan eins til tveggja ára. Stuðla þurfi að innflæði fjármagns til þess að standa undir skuldbindingum landsins. Að öðrum kosti gæti Ísland staðið frammi fyrir mögulegu greiðsluþroti árið 2016. Aðspurður hvers vegna hann vilji frekar kanadíska dollarann en evruna eða bandaríkjadal segir Heiðar að vandinn við evruna sé einkum sá að Evrópusambandið vilji ekki að ríki taki hana upp einhliða og ástandið í efnahagsmálum evrusvæðisins. Hvað bandaríkjadal varðar sé hagkerfi Bandaríkjanna einfaldlega allt of stórt. Ísland eigi meira sameiginlegt með Kanada, bæði menningarlega og efnahagslega, og að auki vilji hann meina að kanadískt efnahagslíf sé í betra ásigkomulagi en það bandaríska./////Það er þessa virði að skoða þetta mjög vel og sennilega betra en Dollar,við eigum svo góða að þarna i Kanada mikið fólk af Íslenkum ættum gæti verið jafn mikið og við Íslendingar?? en þetta ber okkur að skoða,krónan er fallvölt, og það er hægt að stjórna henni,af misvitrum stjórnmálmönnum ,sem er ekki gott að gera meira!!!/Halli gamli
mbl.is Segir stuðning við Kanadadollar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband