Hluti heilans minnkar við áföll/Nærri viss um að þetta er rétt!!!

Hluti heilans minnkar við áföll Tækni & vísindi | mbl.is | 22.5.2012 | 10:41 Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni. vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Vísindamennirnir vildu öðlast betri skilning á áfallastreituröskun (e. post-traumatic stress disorder, PTSD). Þeir báru saman skannmyndir af heilum 42 unglinga, sem upphaflega voru notaðar í öðrum rannsóknum tveimur árum áður en jarðskjálftinn reið yfir í Japan þann 11. mars 2011, við samskonar myndir af sömu unglingunum sem voru teknar þremur til fjórum mánuðum eftir skjálftann. Um 19 þúsund manns létust í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni sem skall á norðausturströnd landsins í kjölfarið. Í ljós kom að börkur augntóttarhluta ennisblaða (e. orbitofrontal cortex) hafði skroppið saman hjá þeim sem sýndu einkenni áfallastreituröskunar. Sá hluti heilans hefur með ákvarðanatöku og stjórn tilfinninga að gera. Frá þessu er greint í tímariti Nature, Molecular Psychiatry (ísl. Sameindageðlæknisfræði). „Breytingin á rúmmáli barkar augntóttarhluta ennisblaða samsvarar alvarleika einkenna áfallastreituröskunarinnar,“ segir vísindamaðurinn Atsushi Sekiguchi. Fyrri rannsóknir höfðu gefið til kynna að breytingar yrðu á heilum fólks með áfallastreituröskun en þessi er sú fyrsta sem segir til með nákvæmum hætti hvaða hluti heilans það er sem bregst við streitunni. Hún leiddi einnig í ljós að fólk með fremur smáa fremri gyrðilsfellingu (e. anterior cingulate gyrus) er líklegra til að þjást af áfallastreituröskun en aðrir. Talið er að niðurstöður þessarar rannsóknar muni auðvelda læknum að greina áfallastreituröskun og þannig veita sjúklingum viðeigandi aðstoð sem fyrst. „Við teljum að þessar breytingar séu ekki varanlegar, því margar fyrri rannsóknir sýna að heilinn jafnaði sig með læknismeðferðum.“ Einkenni áfallastreituröskunar eru m.a. mikið þunglyndi, tilfinningadoði, einbeitingarleysi, svefnleysi og þrálátar endurminningar eða endurupplifanir á formi leiftursýna. Fólk með röskunina upplifir oft mikla vanlíðan þegar það upplifir áreiti sem tengist eða líkist áfallinu. Unglingarnir 42 höfðu verið greindir með mismikla áfallastreituröskun. Þeir bjuggu allir í borginni Sendai sem varð einna verst úti í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni. Nokkrum klukkustundum eftir skjálftann, sem mældist 9 á Richter, varð mikil sprenging í olíuhreinsistöð í borginni og varð öflugra eftirskjálfta vart þar næstu vikurnar á eftir./////Nærri viss um að þetta stenst,ég hefi sjálfur rakið sumt til þessa,og er nokkuð viss,það er nokkuð sem ég hefi fundið 2-3 sinnum um æfina,en þetta mun koma betur i ljós við meiri rannsóknir //Halli gami
mbl.is Hluti heilans minnkar við áföll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband