Nær engin krækiber sjáanleg/En töluvert að bláberjum!!!!

Nær engin krækiber sjáanleg Innlent | mbl.is | 29.7.2012 | 11:14 Langvarandi þurrkar fyrr í sumar, slæmt vorhret og birkifeti sem enn eitt árið gerir óskunda í berjalöndum út um Eyjafirði gera það sameiginlega að verkum að útlit er fyrir að berjasumarið verði langt í frá eins og best verður á kosið.

SigurbjörKrækiberjalyng.g Snorradóttir á Krossum í Dalvíkurbyggð var á ferðinni á heimasvæði sínu, Þorvaldsdal, um liðna helgi og segir hún í samtali við Vikudag að útlitið sé langt í frá gott. Birkifeti, sem er fiðrildalifra hefur enn eitt sumarið gert óskunda í berjalöndum á svæðinu.

Eitt og eitt svæði inn á milli er skárra að sögn Sigurbjargar en þegar ljóst að engin stóruppgrip verða norðan heiða þegar kemur að berjatínslu. „Það er verulega svekkjandi,“ segir hún því útlitið hafi alls ekki verið svo slæmt fyrr í sumar. Sigurbjörg segir að nánast engin krækiber séu sjáanleg nú og þar leggi eflaust saman vorhretið í maí sem var fremur slæmt, langvarandi þurrkar og birkifetinn sem leggst á berjalyng og nærist á því fyrrihluta sumars.

Sigurbjörg segir að rigning undanfarna daga geti bætt ástandið, en þá helst þannig að birti til inn á milli og sólin skíni. „Á tímabili leit út fyrir að þetta yrði prýðilegt berjaár, en mér sýnist að breyting hafi orðið þar á hér fyrir norðan og það er mjög leiðinlegt fyrir okkur berjaáhugafólk,“ segir hún./////Þetta kemur manni ekki á óvart þurkar svo miklir að það hálfa væri nóg,en það er komið  bláber ,og kannski koma þessar rigningar eitthvað til bjarkar en það er mitt álit að það sé of seint,en krækiber eru holl og góða,en samt finnst manni bláberin betri/við verum bara að vona það besta/Halli gamli


mbl.is Nær engin krækiber sjáanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 1045640

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband