Ferguson: Everton gaf bara fram á Fellain///Engar afsakannir Ferguson!!!

Ferguson: Everton gaf bara fram á Fellaini Íþróttir | mbl.is | 21.8.2012 | 10:10 Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ekki kátur eftir tapleikinn gegn Everton, 1:0, í gærkvöldi en United hafði fyrir leikinn ekki tapað í fyrstu umferð síðan 2004.

Belginn stóri og stæðilegi, Marouane Fellaini, fór hamförum í leiknum og skoraði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu. Hann lék varnarmenn Man. United grátt allan leikinn en vegna meiðsla léku Antonio Valenica og Michael Carrick í vörn United. „Hann [Fellaini] er erfiður.

Hann er stór og sterkur strákur og Everton gaf bara alltaf fram á hann. Það var eina sem liðið gerði. Everton vann út frá því að koma boltanum á hann og fékk markið frá honum,“ sagði Ferguson eftir leikinn í gær. „Miðvarðarstaðan er vandamál hjá okkur en við réðum nokkuð vel við það.

Mér finnst ekki hægt að gagnrýna vörnina. Carrick stóð sig ágætlega,“ sagði sir Alex Ferguson./////Ferguson :eins og aðrir, verður bara að fara að sætta sig, við tap annað slagið!!Það verða öll liða að gera sem eru í sæmilegu formi og styrkleika!!! Mér segist svo hugur að mörg lið komi þarna á óvart þetta tímabil,og það bara gott,það gerir okkur áhorfendum meiri spennu og gaman,þó auðvitað vilji allir að sitt lið vinni,en knattspyrnan á að vera svona að í raun á góðum degi geti allir unnið flesta!!!!//Halli gamli


mbl.is Ferguson: Everton gaf bara fram á Fellaini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: el-Toro

engar afsakanir...þeir nýttu sér einfaldlega styrkleikann í þessum Fellanini

el-Toro, 21.8.2012 kl. 12:28

2 Smámynd: Jón Sveinsson

Ég segi fyrir mína parta fyrsti leikurinn gott fall er fararheill

Jón Sveinsson, 21.8.2012 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband