Stærsti straumur ársins/það er svo að við verðum að taka þetta alvarlega!!!

„StærstLandhelgisgæslan biður umráðamenn skipa, báta og hafna að...i straumur ársins“ Innlent | mbl | 14.11.2012 | 22:33 Landhelgisgæslan hefur vakið athygli á óvenjumikilli sjávarhæð næstu daga. „Það er ljóst að stærsti straumurinn verður í fyrramálið.

Það verður stærsti straumur ársins ásamt þeim sem verður eftir mánuð á nýju tungli.“segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.

Landhelgisgæslan hefur vakið athygli á að samfara slæmri veðurspá og um 972 mb loftþrýstingi verður óvenjumikil sjávarhæð næstu daga.

Umráðamenn báta, skipa og hafna eru beðnir um að hafa varann á, sérstaklega suðvestan lands. „Það er ljóst að stærsti straumurinn verður í fyrramálið. Það verður stærsti straumur ársins ásamt þeim sem verður eftir mánuð á nýju tungli

. Í fyrramálið og á morgun verður 970 mb lægð skammt fyrir vestan landið. Loftþrýstingur verður hvað lægstur í kringum Ólafsvík, úti fyrir Patreksfirði og Rauðasandi,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.

Hann segir lágan loftþrýsting lyfta sjávarborðinu hærra. Sunnan lægðarmiðjunnar þar sem loftþrýstingur er ívið hærri muni sjávarborð einnig hækka vegna öldu- og vindáhlaðanda.

„Við erum heppin því á þessum tíma þegar stærsti straumur er þá hafa stundum komið djúpar lægðir með.

Nú kemur djúp lægð en þó ekki sérlega, hún hefði getað verið dýpri miðað við aðdragandann og borið bæði meiri öldu- og vindáhlaðanda, sérstaklega hér vestanlands miðað við að vindurinn er vestanstæður,“ segir Einar.

Einar segir að menn þurfi vart að óttast mikinn atgang því öldugangur verði ekki það mikill þó bátar og skip muni standa hátt. „En segjum að ef lægðin fari aðra leið eða beri meiri vind með sér þá þarf lítið út af að bregða þegar allir þessir þættir koma saman.“//////////Það ber að hafa allan varan á þar sem þetta er við strönd og hafnir,og bara hér vestur á Granda og þarna fyrir vestan sem hann getur um þarna,og þetta er eins gott að hann fari ekki í norðan eða vestan!"! en lægin getur breyst ekki spurning/Halli gamli


mbl.is „Stærsti straumur ársins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045761

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband