Hálka á höfuðborgarsvæðinu//Farið varlega gangandi og akandi!!!

HálkaHálka er á höfuðborgarsvæðinu. á höfuðborgarsvæðinu Innlent | mbl.is | 15.11.2012 | 21:59 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við éljagangi á suðvesturhorni landsins í kvöld og nótt ásamt því sem hiti fer undir frostmark.

Við þær aðstæður myndast mikil hálka á vegum og þykir vert að vera ökumenn við henni, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Víða er skafrenningur norðan- og norðaustanlands og blint, einkum á fjallvegum.

Veður fer kólnandi einkum um vestanvert landið og hálka myndast þegar frystir aftur, fyrst á Vestfjörðum. Víða er éljagangur á Suður- og Suðvesturlandi. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum - og hálka eða hálkublettir austur eftir Suðurlandi.

Eins eru hálkublettir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesbraut. Á Suðurnesjum er sumstaðar töluverð hálka.

Nokkur hálka er Vesturlandi, einkum við Faxaflóa, hálka er m.a. í Borgarfirði, á Bröttubrekku og Fróðárheiði en hálkublettir á Holtavörðuheiði og víðar.

Á Vestfjörðum er víða hálka. Hálkublettir eða hálka er víða á Norðurlandi, einkum austan til. Á Öxnadalsheiði er snjóþekja og skafrenningur.

Laxá í Aðaldal flæðir inn á veg við Garðsnúp og eru vegfarendur beðnir að sýna þar varúð. Á Austurlandi er hált á flestum vegum norðan Reyðarfjarðar en frá Reyðarfirði er autt með ströndinni suður um. Breiðdalsheiði og Öxi eru ófærar.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir eða jafnvel hálka frá Skeiðarársandi og vestur í Vík.////////Vetur konungur er að taka völdin og við bara tökum þvi,við höfum sloppið vel hér sunnanlands og það kemur nú aðeins snjókorn og frost um helgina,sem betur fer ekki ein og fyrir Vestan  Norðan og Austan,,en samt allur er varin góður og við,bara tökum mark á veðurspám!!!!/Halli gamli


mbl.is Hálka á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045650

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband