Greiða ekki aukajólabónus/það hefði kannski verið hægt núna,en ekki næst,það sverfur að!!!!


Hluti af athafnasvæði HB Granda á Vopnafirði. Greiða ekki aukajólabónus Innlent | mbl.is | 10.12.2012 | 10:42 Forstjóri HB Granda, Vilhjálmur Vilhjálmsson, segir að ekki standi til að greiða starfsfólki fyrirtækisins aukajólabónus líkt og Samherji og Gjögur gera nú í Að sögn Vilhjálms virðir fyrirtækið kjarasamninga og greiðir laun í samræmi við þá

„Við teljum stöðu sjávarútvegsins almennt ekki gefa tilefni til þess þó svo að einstök fyrirtæki geti gert það,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Hagnaður HB Granda nam 37,3 milljónum evra, rúmum sex milljörðum króna, á síðasta ári samanborið við 7,8 milljónir evra árið á undan.

Á vef Verkalýðsfélagsins Akraness er skorað á HB Granda að fara sömu leið og Samherji í þessum málum: „Það er óhætt að segja að starfsmenn Samherja geti glaðst um þessar mundir í ljósi þess að fyrirtækið hefur nú tilkynnt starfsmönnum að það ætli enn eitt árið að greiða þeim jólaumbun sem nemur tæpum 400.000 krónum.

Samherji hefur verið iðinn við að láta starfsmenn sína njóta góðrar afkomu fyrirtækisins á liðnum árum og hefur fyrirtækið nú greitt hverjum starfsmanni 810.000 krónur umfram þá kjarasamninga sem undirritaðir voru í maí í fyrra.

Á síðustu fjórum árum hefur fyrirtækið greitt hverjum starfsmanni upp undir 1,5 milljónir umfram gildandi kjarasamninga.

Samherji er ekki eina fyrirtækið sem hefur látið starfsmenn sína njóta góðrar afkomu í sjávarútvegi, en fyrirtæki eins og Eskja, Vinnslustöðin, Brim og fleiri hafa gert slíkt hið sama.

En því miður hefur eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtækið hér á landi, HB Grandi sem er m.a. með starfsstöð hér á Akranesi, ekki séð sér fært að greiða starfsmönnum sínum slíkar greiðslur þrátt fyrir afar góða afkomu undanfarin ár vegna hagstæðs gengis útflutningsfyrirtækja.

Fyrirtækið hefur skilað milljörðum í hagnað og greitt hundruð milljóna í arðgreiðslur til eigenda.

Á þeirri forsendu er það þyngra en tárum taki að fyrirtækið hafi hingað til ekki verið tilbúið til að umbuna sínum starfsmönnum líkt og Samherji hefur gert ár eftir ár,“ segir á vef Verkalýðsfélags Akraness.////////////Það er bara svo að það er verið að þrengja að útgerð allri,það þarf að halda þessu við öllu og ekkert gefið þar,samt held ég að Grandi hefði getað borgað þessu landverkafólki núna auka bónus!!!en því fer fækkandi þegar á að eyðileggja alla útgerð ef af verður að þessi vitleysa öll sem stjórarisinnar vilja,splundra öllu!!!en skoðum málin///Halli gamli


mbl.is Greiða ekki aukajólabónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045677

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband