Óveður á Kjalarnesi////þessu heldur áfram eitthvað ,en gengur svo niður???

ÓveÞað er enn víða ófært um landið þrátt fyrir að dregið hafi...ður á Kjalarnesi Innlent | mbl.is | 30.12.2012 | 8:51 Vegna snjóflóðahættu eru enn nokkrar leiðir á Vestfjörðum og á Norðurlandi lokaðar.

Hálkublettir og óveður er á Kjalarnesi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Lítil ofankoma, en talsverður skafrenningur og kóf á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi í dag.

Vindur hefur þó minnkað nokkuð frá í gær, einkum vestast á landinu. Frá Eyjafirði og austur á Vopnafjörð er hins vegar útlit fyrir éljagang eða hríð í allan dag með hvassviðri og jafnvel stormi af NV.

Veður fer þar versnandi í kvöld frekar en hitt. Á Kjalarnesi má reikna með vindhviðum 30-35 m/s fram á miðjan daginn, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Vegna snjóflóðahættu er lokað á Vestfjörðum um Súðavíkurhlíð, Eyrarhlíð, Botnsdal, Breiðadal og Flateyrarveg en á Norðurlandi bæði um Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarmúla.

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eru á Suðurstrandarvegi og víðar á Suðurlandi en snjóþekja er á Mosfellsheiði.

Á Snæfellsnesi er Fróðárheiði ófær en annars er hálka mjög víða á nesinu. Á Holtavörðuheiði er hálka og skarenningur en ófært er á Bröttubrekku og unnið er að mokstri.

Allir vegir meira eða minna lokaðir á Vestfjörðum og Norðvesturland Á Vestfjörðum eru vegir enn meira eða minna lokaðir og ófærir.

Hálka er í Húnavatnssýslum og éljagangur.

Ófært er frá Hofsósi út í Fljót en síðan er Siglufjarðarvegur lokaður utan Fljóta vegna snjóflóðahættu, og Ólafsfjarðarmúli sömuleiðis.

Ófært er svo á Vatnsskarði, í Héðinsfirði, milli Dalvíkur og Akureyrar og á Öxnadalsheiði.

Um Norðvesturland eru flestir vegir ófærir. Á Austurlandi er ófært á Vopnafjarðarheiði, Möðrudalsöræfum og í Jökuldal.

Þæfingur og skafrenningur er á Fjarðarheiði og í Fagradal en hálka og skafrenningur á Oddskarði.

Annars er víða hálka eða snjóþekja og sumstaðar éljagangur en aftur á móti eru vegir auðir á Suðausturlandi.//////////////////////Veðrið lætur ekki að sér hæða nú u m þessar mundir,með þvi verra sem hefur komið allt síðan 1995 eða svo víða!!en það hefur orðið eyðilegging á húsum og ýmsum hlutum og sjóað allt í kaf viða en misjafnt samt en veðurhæðin með því mesta eins og ég sagði áðan,misjafnt ,við í R.vík sluppum bara vel!!!en fyrir vestan verst snæfellsnes og sunnanverðum Vestfjörum mjög slæmt,en er þessu ekki lokið en víða komið rafmagn aftur!!!en við bara vonum allt það besta,og að þetta verði komið á sæmilegt um áramót!!!!sérstaklega að ekkert slys hafi orðið,vegna veðursins,en sem maður veit!!!!Halli gamli 


mbl.is Óveður á Kjalarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband