Ósammála Þór en styðja vantraust/þetta er spurning já,en samt vonandi tekst!!!!


Bjarni Benediktsson formaður SjálfstæðisflokksinsÓsammála Þór en styðja vantraust Innlent | mbl | 11.3.2013 | 12:00 Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sóru báðir af sér að vera sammála Þór Saari þótt þeir styðji vantrauststillögu hans gegn ríkisstjórninni.

Sögðu þeir málið ekki snúast um stjórnarskrána eina heldur að ríkisstjórnin sé rúin trausti.

Umræður standa nú yfir á Alþingi um vantrauststillögu Þórs Saari á hendur ríkisstjórninni, en hann lagði tillöguna fram í síðustu viku vegna óánægju með að frumvarp að nýrri stjórnarskrá yrði ekki að lögum á þessu kjörtímabili.

Samkvæmt tillögunni á að rjúfa þing og efna til almennra kosninga en fram að kjördegi víki ríkisstjórnin og sett verði starfsstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á Alþingi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Ekki valkostur að styðja ríkisstjórnina Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í ræðu sinni að hann styðji tillöguna, ekki vegna þess að hann sé sammála Þór Saari í stjórnarskrármálinu, heldur af því að það sé ekki valkostur að styðja þessa ríkisstjórn.

„Ég og flutningsmaður tillögunnar erum jafn ósammála í [stjórnarskrármálinu] og nokkrir tveir menn geta verið um eitt mál,“ sagði Bjarni en bætti því þó við að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki á móti því að gera breytingar á stjórnarskrá. Þessi yfirlýsing hans kom af stað kurri í þingsal og sagði Bjarni þá þessa afstöðu flokksins ekki enn hafa komist til skila.

„Ég bið þá forláts sem hér eru með frammíköll og sakna þess að ég skuli ekki hafa lagt oftar vantraust fram á ríkisstjórnina,“ sagði Bjarni. Eingöngu að taka afstöðu til trausts Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins vildi heldur ekki beygja sig undir forsendur Þórs Saari fyrir vantraustinu, þótt hann styðji tillöguna.

Sagði hann atkvæðagreiðsluna tvískipta og að í fyrri hlutannum séu þingmenn eingöngu að taka afstöðu til þess hvort ríkisstjórnin hafi unnið sér það inn að lýst sé trausti á hana. „Það er mikilvægt að þingið noti tækifærið nú í lok kjörtímabilsins til að lýsa því yfir að framganga ríkisstjórnarinnar sé ekki ásættanleg,“ sagði Sigmundur.

Talaði hann m.a. um Icesave málið og kvótafrumvarpið og sagði að þakka mætti stjórnarandstöðunni fyrir að koma í veg fyrir að þau hafi komist í gegn.

Sigmundur Davíð sagði vandamálið það að ríkisstjórnin hafi litið á efnahagsvanda þjóðarinnar fyrst og fremst sem pólitískt tækifæri til að koma á framfæri hugsjónum sínum í hagstjórn. Fyrir vikið hafi dýrmætum tækifærum verið kastað á glæ.

„Ætlar Alþingi að lýsa yfir trausti á þessari ríkisstjórn og þar með þessi vinnubrögð, eða ætla menn að lýsa því yfir í aðdraganda kosninga að vinnubrögð eins og við höfum horft upp á síðastliðinn fjögur ár séu óásættanleg?“

Forsætisráðherra aftursætisbílstjóri Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði sömuleiðis tillögu Þórs setta fram á kolröngum forsendum.

Sagði hann þá hugmynd að setja á starfsstjórn allra flokka fram að kosningum óraunhæfa.

Einar sagði Jóhönnu Sigurðardóttur beinlínis vega að nýkjörnum formönnum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna með málflutningi sínum og reyna að gera tortryggilega tilraun þeirra til að koma stjórnarskrármálinu upp úr þeim hjólförum sem það sé fast í.

„Forsætisráðherra er aftursætisbílstjóri í þessum leiðangri,“ sagði Einar. Þrátt fyrir að tillaga Þórs Saari sé vanbúin að mati Einars sagði hann þó þingmenn hljóta að lýsa yfir vantrausti sínu á ríkisstjórninni.///////////////Sitt sýnist hverum en vonandi ,en vonandi gengur þetta allt upp þá mjótt sé á munum!!!en það sér bara samt best að þetta takst þó stjórnaranstaðan sé tvístígandui um hlutina,þessu Alþingi er að ljúka hver eð er!!en samt ef þetta tekst er hægt að kjósa eftir 3 vikur því frá þó kosningadegi verði ekki kannski breytt 27 Apríl ,en allt um þetta er farið að lögum,og þess vegna á að fella ríkisstjórnin strax!!um það ættu allir að vera sammála einnig þeir sem stiðana!!!!!/Halli gamli


mbl.is Ósammála Þór en styðja vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband