Kallaði eftir afskiptum Ögmundar///Þetta er bara aðför að okkur lansmönnum,við látum ekki fara svon með okkur,engin heimild fyrir þessu!!!

Kallaði eKristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.ftir afskiptum Ögmundar Innlent | mbl.is | 15.3.2013 | 12:02 „Það liggur fyrir í þessu samkomulagi að það á að vinna að framgangi þessarar 800 íbúða byggðar við Skerjafjörðinn á grundvelli gildandi skipulags.

Það skipulag miðast við það að flugvöllurinn verði lagður niður.

Það var unnið með þeim hætti.“ Það hefur hins vegar aldrei verið unnið skipulag á þessu svæði sem miðar að því að flugvöllurinn verði.“

Þetta sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hann gagnrýndi harðlega samkomulag á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um kaup borgarinnar á um 112.000 fermetra svæði við Skerjafjörð við Reykjavíkurflugvöll.

Um er að ræða svæði sem losnar við lokun svokallaðrar litlu flugbrautar flugvallarins. Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson, sem staðgengill borgarstjóra, undirrituðu samninginn á Reykjavíkurflugvelli í gær.

Kristján sagði að með þessu hefði einbeittur vilji Samfylkingarinnar til þess að skerða lífsafkomu og möguleika fólks víða um land til greiðra samgangna við höfuðborg Íslands.

Gagnrýndi hann harðlega að samkomulagið skuli hafa verið undirritað í flugstöð Reykjavíkurflugvallar. Það hefði verið betur við hæfi að gera það á skrifstofu borgarstjórnar.

Sagðist hann vona að innanríkisráðuneytið myndi standa vörð um þá sýn sem Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hafi boðað að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni. Sigfús Karlsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, tók undir orð Kristjáns.

„Það er alveg hreint með ólíkindum finnst mér að Samfylkingin í ríkisstjórn skuli hafa selt Samfylkingunni í borgarstjórn þetta land.“

Sagði hann undirritun samkomulagsins á Reykjavíkurflugvelli smekklausa og sorgargjörningur fyrir landsbyggðarfólk.

Yrði flugvöllurinn lagður niður og innanlandsflugið flutt til Keflavíkur myndi það þýða enn meiri einangrun stórra svæða á landsbyggðinni og skapa öryggisleysi vegna verra aðgengis að stærsta og best búna sjúkrahúsi landsins.

„Vegna upphrópana um málefni Reykjavíkurflugvallar hér fyrr á fundinum er rétt að taka fram að þeir samningar sem gerðir voru þeir varða aðeins þriðju flugbrautina sem má missa sín þó flugvöllurinn verði áfram í rekstri,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar.

Sagði hann ennfremur að Kristján ætti ekki að vera að skammast út í samfylkinguna vegna málsins. Honum væri nær að tala við nýjan varaformann Sjálfstæðisflokkinn, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, eða Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa flokksins.//////////////þetta er frekleg aðför að vellinum,og má ekki lýðast,við erum í öðru máli að tala umhættu af flugvellinum,en núna á að byggja við hann alveg ,auðvitað til að koma honum burt,ekkert annað þarna í farvatninu!!!þetta pakk þarna hvort það kemur frá komum eða okkur mönnum sem eg trúi ekki á mitt fólk!!en ég er ekki búin að trúa þessu að þetta hafi verið samþykkt af mínu fólki á Borgarstjórn!!!en þetta verður stoppað ekki spurning ef ekki með góðu þá illu,ekki spurning þarna stöndum við saman Borarar og landsbyggðarmenn!!!!!/Halli gamli


mbl.is Kallaði eftir afskiptum Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Burt með flugvöllinn!

Óskar, 15.3.2013 kl. 15:21

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Burt með þig Óskar!!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 16.3.2013 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband