Græðgi í fararbroddi við Austurvöll/þetta er að verða svo sem var svo átalið í kreppulýsinguni!!!

GræðgiAusturvöllur er jafnan þéttsetinn á blíðviðrisdögum. Nú... í fararbroddi við Austurvöll Innlent | mbl.is | 19.3.2013 | 17:49 „Á hverjum einasta degi kemur til okkar fólk á öllum aldri sem hefur miklar áhyggjur af miðborg Reykjavíkur,“ segir Halla Bogadóttir talsmaður BIN-hópsins svo nefnda, sem hefur beitt sér gegn framkvæmdum við Austurvöll og Ingólfstorg.

Hópurinn segir breytta tillögu á reitnum litlu betri en þær fyrri Reiturinn sem um ræðir afmarkast Reiturinn sem um ræðir er milli Ingólfstorgs, Austurvallar og Fógetagarðs og afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti.

Í lok febrúar var fjórða tillagan lögð fram að uppbyggingu á reitnum en BIN-hópurinn (Björgum Ingólfstorgi og Nasa) er þeirrar skoðunar að enn sé farið offari líkt og þremur eldri tillögum sem áður var mótmælt.

Horft frá Alþingishúsinu yfir Austurvöll og að nýju byggingunni sem rís fyrir framan Landsímahúsið. Þar eru nú bílastæði. Yfirbragð nýbygginganna er í gömlum stíl en engu að síður eru þær nútímalegar.

Þak Landsímahússins hækkar lítillega; svokölluðu mansardþaki með kvistum er bætt ofan á en það kallast á við áþekkt þak á Hótel Borg hinum megin við torgið.

Á hluti þaksins er gert ráð fyrir þakgarði eða svölum. Hagsmunir borgarbúa ekki leiðarljósið Hagsmunir Reykvíkinga við uppbyggingu miðborgarinnar eru ekki hafðir að leiðarljósi í tillögunni heldur látnir víkja fyrir græðgi, að mati BIN-hópsins.

Um 17000 manns mótmæltu deiliskipulaginu eins og það var lagt fram á síðasta ári, á síðunni ekkihotel.is, og Halla segir að ekkert tillit sé tekið til þeirra mótmæla í nýju tillögunni.

„Það er greinilegt að unnið er að hugmyndum lóðarhafa, í stað þess að finna þessu skipulagi sem svo margir eru óánægðir með í annan farveg og skoða miðborgina sem almenningseign.

Það er það sem við viljum ítreka, að þetta á að vera svæði fyrir okkur,“ segir Halla. Hópurinn geldur varhug við þeirri miklu hótelvæðingu sem sé í miðborginni. „Það er mikil umferð sem fylgir hótelum og hún mun vera þarna beint fyrir framan Alþingishúsið og Austurvöll, á okkar heilögustu reitum,“ segir Halla.

Helstu gallar tillögunnar eru að mati BIN-hópsins þessir: 1. INGÓLFSTORG Fyrirhugaðar nýbyggingar við sunnanvert Ingólfstorg eru ekki í stíl við þau gömlu hús sem þar eru fyrir, og annars staðar við torgið, þrátt fyrir að svo eigi að vera samkvæmt Þróunaráætlun miðborgarinnar.

Nýbyggingum í allt öðrum stíl er troðið milli gömlu húsanna svo ekki gengur hnífur á milli, auk þess sem nýbyggingarnar eru hærri en gömlu húsin og gnæfa yfir þau. 2. NASASALURINN Nasasalinn ber að friða vegna sögu hans og einstæðrar hönnunar.

Húsafriðunarnefnd var þeirrar skoðunar þangað til hún kúventi í afstöðu sinni vegna þrýstings frá eiganda hússins. Það er menningarlegt skemmdarverk að rífa þetta gamla og góða samkomuhús okkar Reykvíkinga.

Fjölnota hótelsalur á sama stað kemur ekki í staðinn fyrir Nasasalinn. 3. AUSTURVÖLLUR Ofan á Landsímahúsið við Austurvöll á að setja kvisti sem skemma þessa sögufrægu byggingu Guðjóns Samúelssonar og auka skuggavarp á Austurvöll.

Einnig á að rísa aftan við gamla Kvennaskólann (innganginn að Nasa) há bygging sem bera mun litla græna húsið ofurliði og auka enn skuggavarp inn á Austurvöll. 4. KIRKJUSTRÆTI Í tillögunni er gert ráð fyrir nýbyggingu sem framlengir Landsímahúsið alveg að gangstéttinni við Kirkjustræti – með enn meira skuggavarpi inn á Austurvöll.

Þessi stóra viðbygging mun loka þeirri fallegu sýn sem er milli Fógetagarðsins og Austurvallar – tveggja dýrmætra og söguríkra almenningsrýma.

Í staðinn kæmi mjó gata sem þrengdi mjög að húsum Alþingis við Kirkjustræti. 5. UMFERÐAMÁL Í þessari tillögu er augunum vandlega lokað fyrir þeim vandamálum sem eru í uppsiglingu á svæðinu þegar þar verður risið eitt stærsta hótel í Reykjavík til viðbótar þeim sem þarna eru fyrir.

Vandamálin snúa ekki síst að umferð, rútubíla, leigubíla og jeppa ferðaþjónustuaðila, svo ekki sé talað um sorphirðu og aðdrætti sem risastórt hótel þarf á að halda. Halla segir BIN-hópinn vilja hvetja fólk til að vera vakandi yfir þróuninni og fylgjast með. „Margir spyrja okkur hvar málið standi og hver sé þróunin og framvindan.

Nú er boltinn hjá skipulagsráði og það er ekki búð að taka endanlega ákvörðun um þetta svæði þannig að við viljum hvetja fólk til að fylgjast með skipulagsráði og hvaða tillögur koma fram.“/////////////////////////////þessu öllu ber að skoða og betrumbæta við viljum ekki rústa miðborginni frekar en Flugvellinum okkar,þetta er það sem ég hefi oft skrifað um áður í sambandi með  skipulag í Borgini okkar,eða er hún ekki Höfuðorg okkar allra!!en nóg um það þetta sem sagt er hér á undan í greininni, er mér að skapi vel ólst upp í þessum stað ,og foreldra mínir báðir!!En skipulagsmál eru ekki bara á færi nokkra manna þetta kemur okkur öllum við/Halli gamli


mbl.is Græðgi í fararbroddi við Austurvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meðan Dagur B er þarna þá verður þetta svona.

Skrípaleikur Jóns Garr hefur gert Dag B að æðsta manni borgarinnar.

Hann getur ekki höndlað það.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 19.3.2013 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045667

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband