Ótrúleg tækifæri í skólamálum:Þú ferð ekki bil beggja heldur tekurðu af skarið???

17 ára.j
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Ótrúleg tækifæri í skólamálum Innlent | mbl.is | 17.4.2014 | 19:01 Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Halldór Halldórsson kom nýr inn á sjónarsvið borgarmálanna í lok síðasta árs eftir að hafa verið bæjarstjóri á Ísafirði og síðar formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Aðspurður hvaða mál brenni mest á Reykvíkingum segir hann það vera húsnæðismálin og skólamálin.Mbl.is ræddi við Halldór Halldórsson, oddvita flokksins um kosningabaráttuna framundan. Halldór kom nýr inn á sjónarsvið borgarmálanna í lok síðasta árs eftir að hafa verið bæjarstjóri á Ísafirði og síðar formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Aðspurður hvaða mál brenni mest á Reykvíkingum segir hann það vera húsnæðismálin og skólamálin. „Ég tel að okkur geti tekist betur að opna betur skólakerfið, veita skólunum meira sjálfstæði og draga úr miðstýringunni.
 
Það er í anda okkar frjálslynda flokks að gefa fólki meira val. Við erum ekki að tala um kennarasamninga, það eru samningamál út af fyrir sig, við erum að tala um það hvernig við höldum utan um skólakerfið.
 
Ég sé ótrúleg tækifæri í því og að draga kannski aðeins úr þessari menntaeinokun eins og rætt hefur verið um. Við erum ekki á sama stað og nágrannaríkin og við getum gert miklu betur en við gerum í dag.“ Á að vera hægt að leysa húsnæðisvandann hraðar Húsnæðisvandinn hefur verið mikið ræddur á kjörtímabilinu og hefur flokkurinn nú kynnt sínar tillögur til þess að leysa hann.
 
Halldór segir skólamálin brenna á Reykvíkingum Halldór segir skólamálin brenna á Reykvíkingum Mynd/Ásdís Ásgeirsdóttir Halldór telur að hægt sé að leysa vandamálið hraðar en núverandi meirihluti hefur gert.
 
„Meirihlutinn hefur verið að ræða þetta allt kjörtímabilið og eru enn að setja upp nefndir og tala um einhver Reykjavíkurhús þar sem borgin á að vera eignaraðili og rekstraraðili.
 
Það er dauðadæmt að okkar mati. Borgin á auðvitað að reka sitt félagslega húsnæði en á að öðru leiti ekki að koma nálægt þessu.
 
Miklu frekar á hún að segja: Hér eru lóðirnar, og setja svo ákveðin skilyrði varðandi leigu, og láta svo einkaaðila, til dæmis stúdenta og einkafyrirtæki sem eru í tengslum við markaðinn sjá um afganginn, því þau eru miklu fljótari að þessu.
 
Okkar hlutverk er bara að ná niður lóðaverði, auka lóðaframboð vegna þess aðborgin sjálf hefur verið að skapa þennan vanda með því að skapa lóðaskort.“ Fjölbreyttar leiðir til að efla íbúalýðræði Í stefnuskrá flokksins fyrir kosningarnar kemur fram að flokkurinn vilji efla íbúalýðræði.
 
Reykjavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur mbl.is/Þorkell Á fundinum í dag sagði Halldór að flokkurinn myndi beita sér fyrir því að íbúakosningar yrðu haldnar í ríkari mæli um stærri mál.
 
Var flugvallarmálið nefnt sem dæmi í því samhengi. Halldór telur að íbúalýðræði megi efla með fjölbreyttum leiðum. Nú er til dæmis komið gott kerfi fyrir rafrænar íbúakosningar sem þjóðskrá hefur fest kaup á. Við sjáum tækifæri í því.
 
Við sjáum líka tækifæri í 108. gr. sveitarstjórnarlaga þar sem segir að 20% íbúa geta farið fram á íbúakosningar. Það er bara krafa íbúa í dag að þeir vilja koma mera að ákvörðunartöku í stórum málum.
 
Ég nefndi í því samhengi flugvallarmálið, því þegar nefnd innanríkisráðuneytisins hefur skilað af sér, þótt við höfnum því að flugvöllurinn eigi að fara til Keflavíkur, þá viljum við að fólk komi að ákvörðunartöku varðandi það mál.“
 
„ Mér finnst fyrir mitt leyti ekkert óeðlilegt að landsmenn allir fái að koma að slíkri ákvörðunartöku, það er annarra að ákveða það, þótt við tölum auðvitað bara fyrir Reykvíkinga.“ Úthverfunum verði líka sinnt Þá segist Halldór einnig heyra gagnrýnisraddir frá fólki sem býr utan hverfanna í miðborg Reykjavíkur, um að þeim sé ekki nógu vel sinnt.
 
„Þess vegna gerum við það að okkar máli að reyna að hugsa um öll hverfin. Þetta brennur á fólki.
 
Mjög margir tala einnig um að það þurfi að bæta almenningssamgöngur, og að fólk verði að fá að hafa meira val um það./////////////////////Svo mörg voru þau orð sem Halldór sagði margt gott en sumt óráðiðið mjög,hlutir eru ekki bæði samþykktir og hafnað um leið,að mínu mati ekki nógu skellegg ræða um hlutina Flugvöllurinn fer als ekki vegna þéttingar byggðar við eigum nóg land,innanlandsflugið verður ekki lagt niður heldur aukið,skal í reynd vera ódýrara en eyjalíft viðhald vega,það mun minka þegar flug er aukið og orðið ódýrarar ,flytja meira með skipum og taka af skarið með þessa þungaflutninga um vegina,smátt og smátt!!breyta flugbrautum eins og verið hefur bent á svo lent sé og tekið á loft út á sjóinn,það er svo að þrístihópar eru alltaf til sem vilja annað en gert er og við getum ekki látið það,í hendur ráðandi manna að tæta það jafnóðum sundur,stjórn verður að vera á hlutunum,og það er svo að gera svo öllum líki er ekki hægt en hliðra til annað slagið má nú,kannski er ég sá sem vil als ekki sósíalvæða Borgina okkar!!!/Halli gamli

mbl.is Ótrúleg tækifæri í skólamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband