Kom stjórnvöldum á óvart:Er fólk virkilega svona auðtrúa að þetta verði???


Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Ragnheiður Elín...
Kom stjórnvöldum á óvart Innlent | mbl | 7.7.2014 | 18:58 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Ragnheiður Elín... Hraðlest milli Keflavíkur og Reykjavíkur yrði arðbært verkefni í einkaframkvæmd, samkvæmt nýrri skýrslu.
 
Ekki þarf að koma til beinna framlaga ríkis og sveitarfélaga. Niðurstaðan kemur iðnaðarráðherra á óvart.ég hafði ímyndað mér að þetta yrði það gríðarlega stórt verk­efni og við það fá­menn að það yrði ein­hver aðkoma rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga,“ sagði Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðnaðar og viðskiptaráðherra um skýrslu sem kynnt var í húsa­kynn­um BSÍ í dag um hraðlest frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Reykja­vík­ur.
 
Sam­kvæmt skýrsl­unni er verk­efnið arðbært sem einkafram­kvæmd og ekki þurfi að koma til beinna fram­laga rík­is eða sveit­ar­fé­laga.
 
Hins veg­ar þurfi að skýra skatta­lega um­gjörð verk­efn­is­ins, til dæm­is með sér­stakri laga­setn­ingu eða fjár­fest­ing­ar­samn­ingi. Guðmundur Guðnason, sviðstjóri samgöngusviðs Eflu kynnti skýrsluna.
 
Guðmund­ur Guðna­son, sviðstjóri sam­göngu­sviðs Eflu kynnti skýrsl­una. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son Ragn­heiður Elín seg­ir að til standi að leggja aft­ur fram frum­varp um íviln­an­ir vegna ný­fjár­fest­inga á Íslandi, ekki tókst að koma frum­varp­inu í gegn­um þingið fyr­ir þinglok í vor. „Það á margt eft­ir að reikna og skoða í þessu verk­efni og spenn­andi að sjá hvort þess­ar lyk­il­for­send­ur sem þeir setja fram hérna stand­ist.
 
Þarna er um verk­efni að ræða sem hef­ur gríðarleg­an sam­fé­lags­leg­an ávinn­ing án þess að þurfi að koma til skatt­fé. Ef þess­ar for­send­ur stand­ast þá munu stjórn­völd ekki standa í vegi fyr­ir því.“ Lest aft­ur til Reykja­vík­ur 100 árum seinna? Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri, var einnig já­kvæður í garð skýrsl­unn­ar og benti í ávarpi sínu á að hundrað ár séu síðan Íslend­ing­ar nýttu sér síðast lest­ar­sam­göng­ur, því árið 1913 gekk lest frá Öskju­hlíð niður að hafn­ar­svæðinu í Reykja­vík til þess að byggja höfn­ina.
 
„Þetta fell­ur mjög vel að okk­ar hug­mynd­um í skipu­lags­mál­um og get­ur verið mik­il­vægt inn­legg í að efla al­menn­ings­sam­göng­ur á höfuðborg­ar­svæðinu. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son Það fer auðvitað að hluta til líka eft­ir úr­færsl­unni.
 
Við erum já­kvæð og vilj­um koma mál­inu áfram í sam­vinnu við öll sveit­ar­fé­lög­in á höfuðborg­ar­svæðinu og á Suður­nesj­un­um.
 
Ljóst er að upp­bygg­ing á slíku lest­ar­kerfi tek­ur mörg ár. Í skýrsl­unni kem­ur fram að hægt er að hefja und­ir­bún­ing á næsta ári, og þá get­ur lest­in svo að lok­um farið að ganga árið 2023. Dag­ur seg­ir að það ein­faldi málið tölu­vert að lest­in mun liggja um jarðgöng inn­an Reykja­vík­ur.
 
„Það var samþykkt fyr­ir nokkr­um árum að taka mið af þess­um lestaráætl­un­um, bæði í svæðis­skipu­lagi og aðal­skipu­lagi hjá sveit­ar­fé­lög­un­um á svæðinu.“ „Það ein­fald­ar málið tölu­vert að það á að setja lest­ina í göng­um und­ir höfuðborg­ar­svæðið al­veg upp í Straums­vík.
 
Því þurf­um við ekki að velja leiðina á milli hús­anna. Það er ótíma­bært að segja að lest­in sé kom­in, en út­reikn­ing­arn­ir líta vel út svo ég tel fyllstu ástæðu til þess að halda áfram að skoða málið./////////Auðvitað er gaman að skoða málin, eins og ég sagði áður um málið,en það er ný búið að tvöfalda Keflavikurvegin alla leið tók mörg ár að klárast,eini vegurinn sem er nánast slysalaus síðan,allavega ekkert dauðaslys, það tekur ekki lengri tíma að fara þetta á bifreiðum um 3 kortér,og hvað svo,við berjumst í bökkum með,vegina okkar um allt land ennþá gamlar brýr og slysahætta um allt vegakerfið,svo kemur þessi snilli allt í einu,og  frammámenn segja mjög góð hugmynd,ef þetta verður gert,er það ágætt að vera tilbúin og búnir að laga vegakeflið okkar sómasamlega,sem eftir öðru og tekur nokkur ár,eða er það ekki það sem fólkið vill,ég bara spyr!!!Auðvitað er þetta vonarpeningur fyrir ferðamennskuna,að geta þetta,en vilja ekki ferðamenn okkar aka um gott vegakerfi lestir ganga ekki um landið okkar og verð því menn að keyra og útlendingar kunna ekki að keyra malarvegi okkar sem eru víða nei klárum fyrst vegakerfið endilega,ég er ekkert hissa menn vilji skoða þetta enda búið áður,en leifið okkur fyrst að aka slysalausa vegi endilega!!!!/Halli gamli

mbl.is Kom stjórnvöldum á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vegakerfið verður aldrei "klárað". Það, eins og flest allt, þarfnast stöðugs viðhalds. Ég vil endilega horfa á þetta verkefni sem viðbót við vegakerfið, ekki sem einhvern dragbít. Þetta eins og göng til míns heimaslóða, Vestmannaeyja, tel ég vera til hins betra. Auðvitað er startkostnaður hár en til langs tíma mun þessar fjárfestingar borga sig eins og hvalfjarðagöng hafa gert. því segi ég já við þessu og hef opin huga fyrir þessu en vil ekki loka dyrum strax.

Þórarinn (IP-tala skráð) 8.7.2014 kl. 21:05

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Gott að þu er svo þenkjandi,eða hvað ekki er ég sammála!!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 9.7.2014 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045767

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband