Ísraelsmenn gefa ekkert eftir/Þetta eru böðlar og ekkert annað!!!!!


Eldar loga í eina raforkuveri Gaza eftir loftárás Ísraelshers í nótt.
Ísraelsmenn gefa ekkert eftir Erlent | AFP | 29.7.2014 | 14:37 Eldar loga í eina raforkuveri Gaza eftir loftárás Ísraelshers í nótt. Yfir 100 Palestínumenn eru sagðir hafa verið drepnir á Gaza í dag, en Ísraelsher hefur látið sprengjum rigna yfir svæðið og varar við því að þeir séu búnir undir langvarandi hernað.
 
Stjórnvöld í Palestínu og Hamas-hreyfingin eru sögð reiðubúin að íhuga sólarhrings vopnahlé.
 
Meðal skot­marka Ísra­els­manna í nótt var eina raf­orku­verið á Gaza, þar sem eld­ar loguðu í morg­un og er út­lit fyr­ir að raf­magn verði af enn skorn­ara skammti en verið hef­ur.
 
Yfir 60 sprengj­um hef­ur verið varpað á Gaza í dag og hef­ur BBC eft­ir tals­manni Ísra­els­hers að það sé til marks um stig­vax­andi þrýst­ing sem sett­ur verði á Ham­as-hreyf­ing­una. 53 Ísra­els­menn eru falln­ir síðan hernaður­inn hófst und­ir vinnu­heit­inu „Protecti­ve Edge“
 
. Flest­ir þeirra eru her­menn. Í Palestínu hafa yfir 1100 manns látið lífið, meiri­hlut­inn al­menn­ir borg­ar­ar að sögn Sam­einuðu þjóðanna.
 
Ban Ki-moon fram­kvæmda­stjóri SÞ sagði í gær að of­beld­inu verði að linna, í nafni mannúðar. 24 klukku­stunda vopna­hlé af mannúðarástæðum Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, hafði þau orð hins­veg­ar að engu en lýsti því þess í stað yfir í sjón­varps­ávarpi í gær­kvöldi að af­vopna verði íbúa Gaza með öllu, Ísra­el til vernd­ar.
 
„Við mun­um ekki hætta aðgerðum án þess að eyðileggja öll göng, sem hafa þann til­gang ein­an að eyða borg­ur­um okk­ar, drepa börn­in okk­ar,“ sagði Net­anya­hu.
 
Hann varaði við því að „bar­átt­an“ yrði langvar­andi. BBC seg­ir frá því í dag að æðstiklerk­ur Írans, Ayatollah Ali Khamenei, saki Ísra­els­menn um að haga sér „eins og hund­ur með hundaæði“ og skori á múslima um all­an heim að sjá Palestínu­mönn­um fyr­ir vopn­um svo þeir geti varið sig gegn þjóðarmorði.
 
Yf­ir­maður Frels­is­hreyf­ing­ar Palestínu­manna (PLO), Yass­er Abed Rab­bo, sagði í dag að eft­ir ít­ar­leg­ar viðræður við leiðtoga Ham­as og Islamic Ji­had hreyf­ing­anna, lýsi yf­ir­völd í Palestínu yfir vilja allra aðila til að koma á vopna­hléi af mannúðarástæðum í 24 klukku­stund­ir.
 
„Við skor­um á Ar­aba og alþjóðasam­fé­lagið að styðja þetta og lýst­um Ísra­els­menn ábyrga fyr­ir af­leiðing­un­um hafni þeir því,“ sagði Rab­bo í yf­ir­lýs­ingu.
 
Eldar loga í eina raforkuveri Gaza eftir loftárás Ísraelshers í ... Eld­ar loga í eina raf­orku­veri Gaza eft­ir loft­árás Ísra­els­hers í nótt.
AFP Líkpokar á Khan Yunis sjúkrahúsinu á suðurhluta Gaza eftir loftárásir ... Lík­pok­ar á Khan Yun­is sjúkra­hús­inu á suður­hluta Gaza eft­ir loft­árás­ir næt­ur­inn­ar.
 
AFP Yasser Abed Rabbo, framkvæmdastjóri Frelsishreyfingar Palestínumanna (PLO), lýsti í dag ... Yass­er Abed Rab­bo, fram­kvæmda­stjóri Frels­is­hreyf­ing­ar Palestínu­manna (PLO), lýsti í dag yfir sam­eig­in­leg­um vilja PLO, Ham­as og Islamic Ji­had til sól­ar­hrings vopna­hlés af mannúðarástæðum. AFP////////////////Þetta er ekki lengur hægt að horfa á,eða hvað finnst ykkur,að þetta ríki Kjarnorkuríki skuli skelfa allan heiminn og engin gerir neitt!! hvað finnst ykkur,maður er alveg dolfallin!!!/Halli gamli

mbl.is Ísraelsmenn gefa ekkert eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Það er merkilegt hve margir á Vesturlöndum eru tilbúnir til að fylkja sér á bak við hryðjuverkasamtök sem viðurkenna að nota eigin borgara sem mannlega skyldi. Hamas og PIJ nota skóla, sjúkrahús og heimili borgara til að skjóta á Ísraela og til að geyma vopn. Heldur þú að Hamas og PIJ brjóti einhver alþjóðalög?

Ísraelar gera það sem þeir geta til að takmarka mannfall meðal óbreyttra borgara - það er auðvitað nokkuð sem þú veist ekki. Hamas notar hins vegar samborgara sína til að skýla sér og vopnum sínum:

https://www.youtube.com/watch?v=KW8KV6HrBzk

Ísraelar reyna að hjálpa óbreyttum borgurum á Gaza:

https://www.youtube.com/watch?v=31ls3WpCmwk

Fjölmiðlar hér flytja ekki fréttir af málinu því í fréttum kemur sjónarmið beggja fram. Þessi svokallaði fréttaflutningur hérlendis og víða annars staðar kallast áróður. Þú ert einn af þeim sem hefur látið blekkjast :-(

Hér sérðu svo vel að hagsmunir og stefna Hamas og óbreyttra borgara á Gaza fara ekki saman:

https://www.youtube.com/watch?v=7CrOq8gd6kQ

Þessi átök eru ekki á milli Ísraela og íbúa Gaza (sem skv. skoðanakönnum eru margir búnir að fá meira en nóg af Hamas) heldur Ísraela og hryðjuverkamanna á Gaza. Ísraelar fóru frá Gaza árið 2005 og síðan þá hafa íbúarnir ráðir sér sjálfir. Yfir 12000 eldflaugum hefur verið skotið á Ísrael frá Gaza eftir að þeir fóru þaðan. Hvers vegna?

Helgi (IP-tala skráð) 29.7.2014 kl. 15:30

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Helgi Hvernig í ósköpum geturðu varið þessi morð á hundruðum á manna konum og barna,hvað rugl er þetta,Íraelar eru búnir að stela 80% af landi Araba á Gasa,og hvað á bara heimurin að samþykkja það?????

Haraldur Haraldsson, 29.7.2014 kl. 16:09

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Innilega sammála þér Haraldur, það er ótrúlegt að til séu menn eins og Helgi ( sem reyndar þorir ekki að skrifa undir fullu nafni) sem réttlæta þessi morð á saklausu fólki.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 29.7.2014 kl. 23:22

4 identicon

@HH:

Þú talar um að Ísraelar séu búnir að stela landi. Þarna kemur heldur betur í ljós hve illa þú ert að þér. Ég er ekki að réttlæta eitt eða neitt en þú gleymir því að Hamas er búið að hafna vopnahléi ítrekað. Hvernig er þá allt Ísraelum að kenna? Ísraelar hringja, senda sms og varpa niður miðum til að vara óbreytta borgara við. Ég vorkenni almennum borgurum á Gaza en þeir eru fyrst og síðast fórnarlömb þeirra sem þarna stjórna :-(

Palestína er svæði sem Rómverjar stjórnuðu á sínum tíma og nú eru á Ísrael, Gaza, Líbanon, Sýrland og Jórdanía. Árið 1695 var gert manntal í Palestínu og þar má sjá ýmislegt áhugavert m.a. það að í því manntali er ekki eitt palestínskt eða arabískt nafn að finna. Gyðingar hafa alltaf verið fjölmennir á þessu landsvæði og meirihluti íbúa Jerúsalem frá 1844. Það sem þú segir er algerlega úr lausu lofti gripið. Finnst þér ekki vandræðalegt að segja staðlausa stafi?

Merkilegt að þú skuldir skipa þér í sveit með hryðjuverkamönnum.

@SÞS: Þú veist ekki, sem er raunar ekki skrýtið, að Hamas og PIJ hafa drepið 30 samborgara sína fyrir að annað hvort mótmæla Hamas/PIJ eða fyrir þær upplognu sakir að vera að hjálpa Ísrael frá upphafi þessara átaka og þeir munu án efa drepa fleiri. Heldur þú að þessir einstaklingar hafi verið tekið að lífi eftir sanngjörn réttarhöld? Ísraelar hringja, senda sms og varpa niður miðum til að vara fólk við.

Það sem þú veist heldur ekki er að yfir 100 eldflaugar frá Hamas/PIJ hafa fallið innan Gaza. Heldur þú að enginn hafi fallið vegna flauga Hamas/PIJ? Finnst þér eðlilegt að hryðjuverkamenn skýli sér á bak við samborgara sína, skóla og sjúkrahús:

https://www.youtube.com/watch?v=8O9AHzUKYk8

Yfirvöld á Gaza nota samborgara sína sem mannlega skyldi og reyna ekki að draga fjöður yfir það:

https://www.youtube.com/watch?v=KW8KV6HrBzk

Svo finnst mér ferlega hallærislegt hjá ykkur ágætu herramönnum að leggja mér orð í munn með því að segja að ég sé að réttlæta/verja morð á fólki þarna. Með því að lesa það sem ég skrifa er hvergi hægt að draga þá ályktun að ég sé fylgjandi drápi á almennum borgurum. Prófið að horfa á þessi myndbönd sem ég linka á. Dettur ykkur virkilega ekki í hug að á þessari deilu sé önnur hlið?

Helgi (IP-tala skráð) 30.7.2014 kl. 09:20

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Helgi þú mátt hafa þinar skoðanir í friði og ég og fjöldin aðrara,í öllum bænum eigðu þetta með þér en ekki mér/Kveða

Haraldur Haraldsson, 30.7.2014 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband