Lögreglumaðurinn neitar sök/Er nokkur sekur fyrr en sekt ver sönnuð????


Héraðsdómur Reykjavíkur
Lögreglumaðurinn neitar sök Innlent | mbl.is | 19.8.2014 | 11:00 Héraðsdómur Reykjavíkur Mál á hendur lögreglumannsins í LÖKE-málinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
 
Maðurinn neitaði sök við báðum liðum.Verj­and­in máls­ins fer fram á mál­inu verði vísað frá. Maður­inn hef­ur verið ákærður fyr­ir tvö brot í op­in­beru starfi.
 
Fyrri ákæru­liður teng­ist meint­um óeðli­leg­um flett­ing­um í mála­skrár­kerfi lög­regl­unn­ar, LÖKE, á tíma­bil­inu 7. októ­ber 2007 til 16. nóv­em­ber 2013.
 
Maður­inn er sakaður um að hafa mis­notað stöðu sína sem lög­reglumaður þegar hann fletti upp nöfn­um 45 kvenna í kerf­inu og skoðaði upp­lýs­ing­ar um þær, án þess að flett­ing­arn­ar tengd­ust starfi hans í lög­regl­unni.
 
Í síðari ákæru­lið er hann sakaður um að hafa þann 20. ág­úst 2012 sent tölvu­skeyti á sam­skipt­asíðunni Face­book um af­skipti sín af ung­um manni í starfi sínu sem lög­reglumaður, sem átti að fara leynt.
 
Næsta fyr­ir­taka í mál­inu verður fimmtu­dag­inn 28. ág­úst.
 
Þá verður afstaða tek­in til í frá­vis­un­ar­kröfu verj­anda ákærða um ákær­una annað hvort í heild sinni eða hluta henn­ar.///////////////////////þetta er ekki hægt að koma svona fram,og birta myndir af manninum í D.V. og bara skömm og ekkert annað,engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð,kverslags framkoma er þetta,þetta er til skammar og ekkert annað!!/Halli gamli

mbl.is Lögreglumaðurinn neitar sök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað nær það ekki nokkurri átt að nafngreina manninn og birta mynd af honum.  En það er ekkert í sambandi við DV sem kemur mér á óvart lengur..

Jóhann Elíasson, 19.8.2014 kl. 14:07

2 identicon

Engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð, og í því hefur DV sama rétt til að telja sannanir nægar og sekt sannaða og hver annar. Það segir nefnilega hvergi að það skuli eingöngu vera dómstólar sem vegi og meti sönnunargögn, öllum er frjálst að draga sínar eigin ályktanir. Til dæmis er málið fyrir dómstólum vegna þess að lögreglan, eftir rannsókn, taldi hann sekan og sendi því málið til saksóknara. Saksóknari taldi sannanir fyrir sekt nægar til að kæra fyrir brotið. Þarna eru tveir aðilar sem ekki hafa dómsvald en hafa samt hafið aðgerðir gegn manninum eins og um sekan mann væri að ræða þó enginn dómur hafi enn fallið.

Jos.T. (IP-tala skráð) 19.8.2014 kl. 15:02

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Jos.T." Þarna er um einhverja frjálslegustu "túlkun" á sekt og sakleysi að ræða, sem sést hefur og bendir einna helst til andlegra veikinda hjá þér........

Jóhann Elíasson, 19.8.2014 kl. 15:20

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Æi Jos.T. ef þetta væri þér skylt mundir þú þá fara með sama offorsi að þessu,maður bara spyr!!!!!!

Haraldur Haraldsson, 19.8.2014 kl. 16:45

5 identicon

Ég sagðist ekki vera sammála DV, en ég virði samt rétt DV til að birta nöfn þeirra sem þeir telja sig hafa sönnu fyrir að framið hafi glæp. Þá er mér sama hvort það er Lögga sem bregst, prestur sem nauðgar, bankamaður sem stelur eða mótorhjólagaur sem lemur samborgarana. Þið virðist aftur á móti aðeins telja það verjandi að birta nafn og mynd ef ykkur mislíkar brotið eða maðurinn, þá takið þið samstundis undir í fordæmingu hins meinta sakamanns. Og þá stundina virðist ykkar skilningur á "sekur fyrr en sekt er sönnuð" nokkuð annar en þegar þið verjið vini og vandamenn.

Jos.T. (IP-tala skráð) 19.8.2014 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband