Sjálfstæðisflokkur er allra stétta segir þarna,er það nokkur villa,spyr bara minn flokk!!!

Grundvallarstefnu3240_85622372532_655067532_2464490_96755_nmál og hugsjónir Sjálfstæðisflokksins koma fram í sjálfstæðisstefnunni sem flokkurinn hefur fylgt frá upphafi.

Sjálfstæðisstefnan er hvorki langorð né flókin heldur veitir hún leiðbeiningar um nokkur mikilvæg atriði sem er nauðsynlegt að taka mið af, vilji menn tryggja frelsi og framþróun í þjóðfélaginu.

Hún gefur sig ekki út fyrir að vera nákvæm forskrift að fullkomnu ríki enda lifa slík fyrirmyndarríki sjaldnast sjálfstæðu lífi utan kennisetninga og fræðikerfa.

Þegar Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn sameinuðust árið 1929 undir merkjum nýs flokks, Sjálfstæðisflokksins, var kveðið á um tvö meginatriði sem flokkurinn skyldi hafa að leiðarljósi.

Annars vegar var því lýst yfir að undanbragðalaust yrði að vinna að því að landið yrði sjálfstætt þegar skilyrði væru til þess samkvæmt sambandslögunum.

Hins vegar sagði að flokkurinn ætlaði: „Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“

Þessi kjarnyrta stefnuyfirlýsing hefur fylgt flokknum allar götur síðan og verið hans leiðarljós.

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er stefna flokksins í einstökum málaflokkum mótuð, eins og sjá má á öðrum stað á síðunni auk þess sem samþykkt er sérstök stjórnmálaályktun á hverjum landsfundi.

Landsfundi flokksins sitja landsfundarfulltrúar, sem valdir eru af aðildarfélögum flokksins um land allt og hafa allir fulltrúar atkvæðisrétt á landsfundi varðandi stefnumótun og kjör í embætti flokksins.

Undanfarin 18 ár hafa orðið miklar breytingar í íslensku samfélagi, sem er nú orðið opnara og frjálsara en áður.

Kjör almennings í landinu hafa batnað mikið á þessu tímabili, kaupmáttur aukist verulega og atvinnuleysi verið með því minnsta sem þekkist í heiminum.

Þrátt fyrir að miklir erfiðleikar hafi fylgt falli bankakerfisins á Íslandi í október 2008, er sá árangur sem náðst hefur ekki til einskis.

Á næstu misserum verður atvinnulífið byggt upp á nýjan leik og íslenska þjóðin mun koma sterkari út eftir á.

Þrátt fyrir að ríkisvaldið hafi tímabundið þurft að stíga inn í rekstur veigamikilla fyrirtækja er skýrt að mati Sjálfstæðisflokksins að slíkt sé ekki heillavænlegt til langframa og verður losað um eignarhald ríkisins aftur um leið og færi gefst.

Forysta Sjálfstæðisflokksins: Formaður Sjálfstæðisflokksins: Bjarni Benediktsson Varaformaður Sjálfstæðisflokksins: Hanna Birna Kristjánsdóttir Ritari Sjálfstæðisflokksins: Guðlaugur Þór Þórðarson Formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna: Halldór Blöndal Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Magnús Júlíusson Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna: Þórey Vilhjálmsdóttir Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Jón Ragnar Ríkarðsson Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Þórður Þórarinsson Formaður sveitarstjórnaráðs Sjálfstæðisflokksins: Aldís Hafsteinsdóttir///////////////////////////////////////////Ég sem sjálfstæðismaður er að minna mína menn á hvað flokkurinn stendur fyrir,manni finnst í umræðunni það mjög gleymast,og þetta orð Stétt með Stétt við ég mikið með gera annars er illa farið fyrir flokknum,við skulum bara halda okkur við að hafa þetta þarna og fara eftir því!!!Það er svo að þetta er sagt að það sé ekki hægt að gera svo öllum líki en það verðum við að gera,ekki vera eins og kommarnir að dýrka bara fátækt og umkomuleysi,menn eiga aldrei að gleyma upprúna sínum að vera sjálfstæðir,og viðra sjálfstæði þjóðar vorar,ég er ekki heldur sáttur við að Alþíðuflokkur Skuli hafa skemmst svona mikið við Allaballa og nú Samfylkingu,þetta var flokkur sem við störfuðum saman við í 12 ár,en þessir blessaðir ESB sinnar fara nú að skilja af hverju þetta bandalag,sem Hitler ættaði sér í stríðinu að ná saman,er Merkel að fylgja eftir núna en verður henni hált mjög!!Hitt er annað að gjaldmiðil nýjan þurfum við ekki spurning,engin getur lifað í eylífri verðtryggingu,við vitum þetta öll en hvar er besta að taka er og verður að skoða!!! Nei nú bíðum við sem eftir er að semja við okkur í Iðnaði Verslun og verkamanavinnu Iðnarmönnum og Aldraða og öryrkja,þá verðum við að vera skinnsöm og gera samninga sem fylla það að menn geti lifað af því eða segir flokkurinn okkar það ekki???ég veit að Ríkisstjórinn getur skattalega bætt fyrirtækjum þessa kauphækkun upp og við fáum samning til 3 ára ef vilji er fyrir hendi//Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045700

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband