6% samdráttur í þýska hagkerfinu////Hvernig er hann á Íslandi???


Yfirmenn fimm helstu efnahagsstofnanna Þýskalands kynna... Þýska hagkerfið mun skreppa saman um 6% á þessu ári og samdrátturinn mun halda áfram árið 2010, samkvæmt svartri spá sem gerð var fyrir efnahagsráðuneyti landsins. Einnig er talið að atvinnuleysi í Þýskalandi nái 10% á næsta ár og útflutningur muni dragast saman um 22,6%, en Þjóðverjar eru mesta útflutningsþjóð heims

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði áður spáð 5,6% samdrætti í þýska hagkerfinu og sagt að hvergi væri samdrátturinn jafn hraður og í Þýskalandi, að Japan undanskildu.

Síðasta spá sem gerð var fyrir efnahagsráðuneytið gerði ráð fyrir 0,2% jákvæðum hagvexti í Þýskalandi á þessu ári, en vegna heimskreppunnar hafa þær spár snarlega breyst. Talið er að það muni taka þýska hagkerfið um 5 ár að jafna sig eftir þennan mikla samdrátt//Þetta vekur okkur ugg sem erum að hlusta á að við eigum að ganga i ESB ,en hvernig er ástandið hjá okkur miða við þetta,hlýtur að koma ver út er það ekki???/Halli gamli


mbl.is 6% samdráttur í þýska hagkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ESB ekki val, við verðum að ganga í það, annars verður Ísland fátækt næstu 10-15 árin. Almenningur gerir sér ekki fulla grein fyrir því. Við erum þegar komin í þessar tölur sjálf, nema að hjá okkur er líka ónýtur gjaldeyrir.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 00:57

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við erum ekkert fátæk ennþá,við eigum bara ekkert að borga skuldir okkar höfum  engin efni á því,bara að snúa okkur i viðskipti við USA og suður Ameríku og austur á við,og taka upp Dollar/gefa skít i Evrópu að mestu þetta er menn sem ætta bar að gleypa okkur/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.4.2009 kl. 07:48

3 identicon

Það er samt hærra en 6% atvinnuleysi hér, tölurnar eru verri hér heldur en í Þýskalandi, þannig að það eru ekki góð rök að benda á Þýskaland sem dæmi um land sem gengur illa því það sé í Evrópusambandinu. Við erum ekki í því, og vondu tölurnar sem við erum að horfa á, eru hærri hérlendis.

Að taka upp dollarann þýðir að við þurfum dollara sem við hvorki eigum né höfum aðgang að. Við gætum alveg eins haldið okkur við krónuna og keypt okkur yfir í dollara á því gengi sem aðrar þjóðir nota yfir krónuna.

Jájá, Evrópa vill gleypa okkur, það verður bara að hafa það.

 

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 12:13

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það að samdráttur sé 6% í þjóðfélagi,segir ekkert um atvinnuleysi það er viðvarandi i ESB löndunum 9-15% og ekkert betra i þyskalandi en öðrum ESB löndum/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.4.2009 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband