„Algjör misskilningur“ nei ekki alveg svo auðvelt að segja svona!!!

Innlent | mbl | 28.7.2009 | 16:59
„Það má ekki skilja orð mín svo að ég sé alfarið á móti auknum fjárveitingum til lögreglu. Það er bara algjör misskilningur. Það sem við erum að gera núna er að huga að þessu: Hvað á lögreglan að gera og hvað kostar það mikinn Ég býst við því að við getum kynnt einhverjar tillögur til sögunnar innan skamms. Umræðan er bara það heit, ef ég má segja svo, að ég held að við getum ekki beðið með það öllu lengur. Við erum að klára vinnuna,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra.

Verja eigi grunnþjónustuna og tryggja öryggi borgaranna.

„Í því sambandi þarf að fara í gegnum það hvað t.d. þarf marga lögreglumenn til að tryggja öryggi borgaranna á hverjum stað. Hvers konar lögreglumenn eru þetta? Við höfum sagt að það þurfi að minnka yfirbyggingu, þannig að það er ýmislegt sem þarf að skoða í þessu samhengi sem við verðum að taka svolítið vísindalega.“ 

Lögreglustjórinn svari fyrir sína starfsemi

Aðspurð segist Ragna ekki hafa fengið tölvupósta eða ábendingar frá almennum lögreglumönnum vegna þeirrar óánægju sem hefur ríkt. Það sé miður. Hún hvetur þá sem vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri að hafa samband, t.d. með því að senda tölvupóst.

„Ég hef að vísu auðvitað heyrt sjónarmið innan úr lögreglunni. Og ég verð bara að segja þá skoðun mína, eftir umræðu síðustu viku, að það sé komið að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að svara fyrir sína starfsemi.

Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, skrifar grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann fjallar um störf lögreglunnar. Þar segir m.a.:

„Ég veit ekki hvort almenningur eða stjórnmálamenn átta sig á því að fjárveitingar til lögreglu eru og hafa verið of lágar. Löggæslan þarf, af nauðsyn, að miða sig mjög mikið við skemmtanalíf landsins og afleiðingar áfengisneyslu. Þannig er meiri áhersla lögð á kvöld- og helgarlöggæslu, en að degi til er löggæslan í þvílíku lágmarki að skömm er að.“

Dómsmálaráðherra segist geta tekið undir mörg þau sjónarmið sem komi fram í grein Guðmundar.

„Ég held að það séu mörg áhugaverð atriði sem bréfritari bendir á, t.d. hvað varðar inntak lögreglustarfsins og lögreglan á að gera. Þetta eru mjög góðir punktar hjá honum,“ segir ráðherra.
pening,“ segir dómsmálaráðherra spurður út í löggæslumál///Auðvitað er þetta athugandi að taka þessi mál i gegn eins og annað,Löggæslan verður að vera i lagi,um það er ekki deilt,enn og aftur hefur Dómsmálráðherra sagt að það þurfi að taka þetta allt i gegn,og minka i yfirbyggingunni það er málið,en þessar eylífu kvartanir slag i slag um erfiði og þreytu manna ,er komið nóg ,þetta eru vinandi menn eins og aðrir sem vinna svona störf Slökviiiðsmenn  sjúkraflutningsmenn og margir fleiri,það þarf einnig að borga þessum mönnum betur ,mikið betur svo þetta verði eftirsótt starf vaskra manna/en umfram allt það þarf að spara víst alstaðar einnig hjá okkur gamlingjunum og það vel þar?????!!!skera allt niður!!!Halli gamli


mbl.is „Algjör misskilningur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045649

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband