Algjör þáttaskil með hruninu segir Björn Bjarnason/

Björn Bjarnason
Innlent | mbl.is | 1.8.2009 | 22:13
Björn Bjarnason „Algjör þáttaskil urðu í bankastarfsemi með hruninu í byrjun október 2008. Fráleitt er að láta eins og það, sem gerðist í aðdraganda hrunsins, eigi að lúta lögmálum eðlilegra bankaviðskipta. Ætli okkur verði ekki sagt, að hagsmunir „viðskiptalífsins“ séu í húfi? Ekki kæmi á óvart, að Viðskiptaráð Íslands ályktaði til stuðnings lögbanni á fréttir frá Kaupþingi," skrifar Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra á vef sinn í kvöld

Fráleitt að bankaleynd eigi að ráða umræðum

Hann segir að nú sannist enn, hve fráleitt er, að telja bankaleynd eiga að ráða umræðum um aðdraganda hruns íslensku bankanna. „Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar, dró lappirnar andspænis gagnrýni á bankaleynd um atburði, sem eru hluti af sögu bankahrunsins. Hann flutti ekki frumvarp um breytingu á lögum til að aflétta leyndinni. Gylfi Magnússon, arftaki Björgvins G., stendur einnig vörð um þessa sagnfræðilegu bankaleynd. Í krafti hennar krefst Kaupþing þess, að lánabók þess fyrir hrun sé lokuð og fjölmiðlar fái ekki að segja fréttir úr henni."

Joly tekur ómakið af fjölmiðlafulltrúum

Björn fjallar einnig um grein Evu Joly í Morgunblaðinu á vef sínum í dag.  Segir hann að hún hafi tekið ómakið af fjölmiðlafulltrúum forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins í að verja hag Íslands út á við.

„Ef rétt er munað höfðu þau Kristján Kristjánsson, fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis, og Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytis, á orði, að þeirra höfuðverkefni væri nú að sjá til þess, að málstaður Íslands hlyti kynningu í erlendum fjölmiðlum. Eva Joly hefur svo sannarlega tekið af þeim ómakið. Umbjóðendur þeirra Kristjáns og Urðar, Jóhanna og Össur, hefðu auk þess aldrei viljað leggja nafn sitt við grein, sem skammar forseta framkvæmdastjórnar ESB eða Gordon Brown, forsætisráðherra Breta. Hvorugt samræmist þjónkun þeirra við ESB.

Ríkisstjórn með samfylkingarfólk í embætti forsætisráðherra og utanríkisráðherra getur ekki staðið vörð um málstað Íslands út á við. Samfylkingin er svo ofurseld þránni um aðild að ESB, að hún er ófær um gæslu íslenskra hagsmuna," skrifar Björn ennfremur.//Þessu er maður sammála og vel það,þessa grein er eins og maður hefði sjálfur viljað koma ferm með/Vona að Björn fyrirgefi mer að eg skuli apa þetta upp eftir honum/Halli gamli


mbl.is Algjör þáttaskil með hruninu segir Björn Bjarnason
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott hjá þér Halli að vekja athygli á þessari góðu grein. Björn Bjarnason veit sínu viti

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband